Þegar verið var að ganga frá eftir matinn á laugardagskvöldið var KBB að pirra sig á að koma ekki gosflösku inn í ísskápinn. Hún vildi vita hvað allar þessar vínflöskur væru að gera þarna og spurði heldur hryssingslega "Hva, erum við byrjuð að drekka eða...?"
Okkur foreldrum hennar þótti fyndið hvernig hún tók til orða - rosa meðvirkni í gangi, krakkinn bara með í dæminu ef foreldrarnir væru kannski byrjaðir að smakka vín. Þá vildi hún bara vita það svo hún gæti þá fengið sér í glas líka bara LoL.
Allar þessar flöskur - þrjú stk. samtals eiga sér skýringar. Fengum heimalagað rósavín frá góðum vinum s.l. haust eða sumar. Fékk hvítvínsflösku eftir að hafa aðstoðað flott brjúðhjón s.l. sumar. Og karl faðir minn steingleymdi að opna kampavínið sem þau mamma komu með á gamlárskvöld. Nú eru allar þessar ágætu flöskur inni í ísskáp og taka allt gosplássið heimasætunni til mikils ama. Spurning um að skella í sig smá í kvöld yfir sjónvarpinu og búa til smá pláss fyrir gosið.
Skál

Ummæli