Fara í aðalinnihald

Hver ekur eins og ljón...

Myndi ekki nenna að vera bílstjóri. Í dag var umferðardagurinn mikli hjá mér. Og ég sem var að segja við BH í gær að bensínverðið væri það hátt að maður þyrfti að spá aðeins í það hvort maður þurfi að fara eða geti sameinað ferðir.

Byrjaði klukkan tæplega sex í morgun héðan úr Leirutanganum og svona hljómar þetta - Barrholt - Leirutangi - Krókháls - Barðastaðir - Krókháls - Barðastaðir - Leirutangi - Hestháls - Leirutangi - Súðarvogur - Barðastaðir - Háskólinn - íþr.húsið Varmá - Leirutangi - Klapparhlíð - Laugardalur - Klapparhlíð - Laugardalur - Leirutangi og ég vona að ég sé þá hætt í dag. Spurning um að halda sig bara heima á morgun og læra.

Strákarnir voru í alla nótt að undirbúa flutning á tölvum frá Krókhálsi að Barðastöðum. Fluttu þær svo í morgun og þetta reddaðist allt á endanum. Leit ekki vel út í fyrstu en ekkert meiriháttar klúður fór í gang sem betur fer. BH og DH hafa ekkert sofið í rúma 36 klukkutíma og er ég óþreytandi að fræða þá um mikilvægi svefns. Var nefnilega að horfa á 60 Minutes í gær og þar var fjallað um mikilvægi 8 klst. svefns. Stefnt er að því að flytja um helgina. Nú er unnið hörðum höndum að því að hafa rýmið eins mikið tilbúið og hægt er. Búið er að parketleggja mest allt, verið að flota gólf í kvöld til að geta byrjað að flísaleggja á morgun. Eyjan er að verða tilbúin og hurðir að koma á innréttinguna. Hlakka mjög til að sjá þetta tilbúið því þetta er farið að líta virkilega vel út, búið að gera ROSALEGA mikið á stuttum tíma.

O&O

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Heyrðu maður er orðinn svo forvitinn. Þið verðið að halda bara opnunarpartý þar sem ég er boðin og fæ að sjá hehe. Kv Helga.
Lóa Björk sagði…
Þú ert velkomin anytime :o)
Nafnlaus sagði…
Pant líka;-) kv Fríða
Lóa Björk sagði…
Of course, við eigum eftir að monta okkur af fínheitunum þegar við verðum búin að koma okkur fyrir.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...