Yup auðvitað tek ég þátt og fyrsta sem ég geri á morgun er að heimsækja aldraða ömmu mína og sparka í hana. So what þó hún sé komin með hvítt fallegt hár - ég veit vel að hún var með rautt hár í denn. Og ég veit líka að móðir mín hélt í fyrstu að ég yrði rauðhærð... og það glitti í rautt hjá dóttur minni líka þegar hún fæddist, þó þessi rauði litur okkar mæðgna átti eftir að víkja fyrir ljósum lokkum - hjúkk því þá verður ekki sparkað í okkur á morgun! BH á líka nokkur frændsystkini sem við gætum dundað okkur við að sparka í... já já þetta verður fjör!
Eða ekki - það hlýtur eitthvað að vera að heima hjá fólki sem lætur sér detta í hug svona vitleysa. Hvaða öfund er þetta út í fólk með rautt hár?
o&o
Eða ekki - það hlýtur eitthvað að vera að heima hjá fólki sem lætur sér detta í hug svona vitleysa. Hvaða öfund er þetta út í fólk með rautt hár?
o&o
Ummæli