Fara í aðalinnihald

Þétt dagskrá...

Alltaf nóg að gera fyrir jólin. Krakkarnir eru út um allt - spila á tónleikum, keppa í íþróttum, tómstundir með bekknum sínum, jólabingó o.s.frv. Þetta er alltaf annasamur tími en mjög skemmtilegur. Veit fátt skemmtilegra en að fara t.d. á tónleika hjá þeim. Gaman að sjá þau spila fyrir framan fólk eftir að þau hafa æft sig vel og allt gengur upp hjá þeim. Gaman að sjá þau í íþróttum þar sem þau æfa að kappi að gera sitt besta og mér finnst þau að sjálfsögðu alltaf flottust. Best finnst mér þó að þau hafa bæði öðlast öryggi í að koma fram fyrir framan fullt af fólki og þrátt fyrir pínu sviðskrekk öðru hvoru þá skila þau alltaf sínu svo vel og við erum alltaf svo ánægð með þau. Reyndar verður að viðurkennast að KBB nýtur sín alltaf með smá áhorfendur í kringum sig, það virðist ekki há henni eins og foreldrum hennar að láta ljós sitt skína :o)

Það eru sem sagt tónleikar hjá þeim báðum í næstu viku, KEB er að keppa um helgina á Akranesi í fimleikum og KBB tekur beltapróf í karate í desember. Skautaferð hjá bekknum hennar KBB á morgun og KEB fer með sínum bekk í bústaðaferð í desember.

Okkur finnst gaman hvað hópurinn hans KEB í fimleikum hefur greinilega staðið sig ágætlega því þjálfarinn sagði í byrjun annar að það væri bónus ef þau gætu keppt núna
því hópurinn er svo misjafn í getu og styrk. KEB til mikillar armæðu reyndar því keppnisskapið er að fara með hann. Hann er svo duglegur að leggja sig fram um að geta það sem hann langar að gera. Held að hann sé búinn að ná öllu sem hann hefur virkilega lagt sig fram um að gera. Það þýðir ekki að hann geti allt 100% en hann hættir ekki að reyna fyrr en hann hefur náð að geta t.d. afturábakheljarstökk, flikk og hvað þetta heitir allt. Svo þarf hann að bæta tæknina oft en hálfur sigurinn er að geta það sem beðið er um. Og svo er líka gott að mamman situr ekki mikið og horfir á því hjartað tekur stundum kipp og maginn fer á hvolf þegar ég sé hvað hann er að gera í tímum. Þó ég sé ansi vön þessum hringsnúningum hans hérna í garðinum á sumrin. Vonandi gengur þeim vel á þessu móti um helgina, það væri gaman. Annars er þetta rosa fín æfing fyrir þau og líka að sjá hvað hin félögin eru að gera og geta!

Bústaðaferð með bekknum kemur í stað skólaferðalags 9. bekkjar þetta árið í Lágafellsskóla. Því skólinn má ekki rukka fyrir skólaferðir og því var ferðin lögð niður. Þetta fannst kennurum þeirra leiðinlegt og vildu gjarnan bæta þeim þetta og fengu aðstoð foreldra. Bekkurinn hans KEB er greinilega með flotta bekkjarfulltrúa sem redduðu bústað og svo verður bara sameinað í bíla til að skutla þeim þangað. Kennarinn þeirra ætlar að vera með þeim í einn sólarhring og svo taka einhverjir foreldrar hina nóttina. Frábært framtak og gaman að þetta skyldi hafa orðið að veruleika.

KBB er dugleg að fara að heiman líka því hún hefur farið í tvær útilegur með skátunum í haust. Hún er alveg að dýrka þetta skátastarf held ég, þetta á svo vel við hana og gaman hvað hún er dugleg að drífa sig og taka þátt í öllu. Svo þegar heim er komið þá talar hún allann daginn til að segja okkur frá öllu því skemmtilega sem þau gerðu og hvert þau fóru. Endalaus hamingja. Vonandi á hún eftir að endast í þessu félagi því þarna virðist vera gott fólk sem hefur ánægju af starfinu. Það á líka svo vel við þessa litlu drottningu að gera eitthvað og finna útúr hlutunum og redda málum og þannig. Duldið lík föður sínum, það er bara fyndið - hún getur verið eldsnögg að finna útúr hvernig best sé að gera hlutina. T.d. var BH að kaupa efni til að við getum búið til okkar eigin dráttartauma fyrir hundana. Ómögulegt að vera að kaupa það dýru verði, gott að eiga þetta í öllum stærðum og gerðum. Hann sýndi KBB þetta einu sinn og hún náði þessu strax og þau sem sagt sjá um að græja þetta. Svo var BH eitthvað að spá hvernig hann gæti reddað einhverri lykkju svo hún yrði góð og KBB var ekki lengi að koma með lausn sem þau feðgin voru hæstánægð með. Já það er nú þannig að við mæðgin hins vegar búum ekki yfir þessum hæfileika þeirra feðgina. Verkvitið er ekkert að sliga okkur neitt. Ekki það að við getum ekki græjað svona tauma - svo lengi sem þau BH og KBB kenni okkur þetta og svona hafi yfirumsjón með þessu öllu saman ;o)

Gott að skrifa svona jákvætt allt saman um þessi fullkomnu börn mín, ég gleymi því þá á meðan að þau eru að gera mig nett bilaða dags daglega yfir því hvað þau eru gleymin, viðutan og utan við sig...

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þetta eru flottir krakkar sem þú átt. En guð hvað ég skil þig að eiga erfitt með að hofa á fimleikana. Ég væri örugglega ein taugahrúga. Þvi ég á nú stundum bara erfitt með að horfa á þetta í sjónvarpinu, held alltaf niðri í mér andanum þegar liðið er að hoppa og skoppa út um allt. Hvað þá þegar stelpurnar eru á slá, ég fæ bara í magann. Og það er fólk sem ég þekki ekki neitt ;). Kv Helga
Lóa Björk sagði…
he he - yup stelpurnar á slánum eru bara scary, get varla horft á þær...
Nafnlaus sagði…
Snilldar krakkar engin spurning en jæks hvað ég öfunda ekki þá foreldra sem fara með þessi 20 börn í bústað og nei öfunda ekki heldur okkur hin sem eru með hina tvo bekkina sem fá ekki að fara - þetta er æra okkur hér - ekki vinsælt en svo sannarlega skemmtið ykkur vel ;0 ) og flott framtak
kv.MI
Lóa Björk sagði…
á ekkert að gera fyrir hina tvo bekkina - enginn sem er til í að reyna að fá bústað og svo allir að ferja liðið - æ ég vona að þau fái að gera eitthvað líka...

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...