Fara í aðalinnihald

Röfl í lok vikunnar

Mér finnst umræðan hérna á klakanum um mansal ansi áhugaverð. Hélt fólk í alvöru að mansal þrifist ekki hér á Íslandi?? Og að halda að það sé fyrst núna í gangi er dálítill barnaskapur held ég. Þrátt fyrir að slík mál hafi ekki ratað til dómstóla eða komist í hámæli í fjölmiðlum þá held ég að mansal hafi tíðkast hér í langan tíma án þess að nokkuð hafi verið gert. Fyrirsagnir um að verið sé að útbúa einhverskonar áætlun eða aðgerðalista til að bregðast við mansali pirra mig bara. Af hverju er það ekki löngu búið? Af hverju eru svona áætlanir ekki tilbúnar og farið að vinna eftir þeim núna í stað þess að byrja núna fyrst á einhverri grunnvinnu?

Það er ekki eins og að fólk hafi ekki vitað að mansal væri í gangi allt í kringum okkur - af hverju hélt fólk að mansal viðgengist ekki hér líka?

Vona að opinberum aðilum sem vinna að þessum málum gangi vel að finna úrlausnir og hjálpa þessum ólánsömu konum. Og það væri ansi gott ef hægt væri að fangelsa þá sem stunda svona þrælahald - helst henda lyklunum bara.

Svo glotti ég nú út í annað þegar lesið var í fréttum í gær að faðir sem misnotaði 2 ára dóttur sína kynferðislega hefði fengið tvöfaldaðan dóminn í hæstarétti. Hrædd um að hann sjái eftir að hafa áfrýjað - geri ráð fyrir að hann hafi áfrýað en ekki ákæruvaldið. Besta mál að svona fólk fái þunga dóma, það væri óskandi að það hefði fyrirbyggjandi áhrif. Því miður er ég ekkert allt of bjartsýn á það samt. Eini gallinn við þetta er að endemis fangelsin fyllast hraðar og ekkert pláss er fyrir dæmda sakamenn. Spurning um að finna aðrar leiðir til að kippa fólki úr umferð í einhvern tíma. Veit ekki hvernig samt.

Á Bylgjunni um daginn var verið að ræða glæpagengjamál og að glæpir væru nú að færast í aukana og að glæpagengi væru búin að koma sér vel fyrir hérna og svona eitthvað. Mér fannst hann ansi góður einn hlustandinn sem hringdi inn og vildi bara gera þennan framsalssamning við Brasilíu og senda svo alla þessa helv... útlendinga þangað. Hmmm já - ekki kannski brattasta brekkan í dalnum þessi því hver segir að Brasilíumenn vilji taka við öllum skúrkum Íslands???
Já og gaurinn sem var nú ekki alveg sammála lögreglustjóranum um að fólk ætti að hætta að kaupa þýfi. Ég meina ef þér er boðin fartölva á fáránlegu verði þá máttu vita, alla vega gera ráð fyrir, að hún sé stolin. Nei sko gaurinn vildi meina að allt væri bara orðið svo dýrt... já og sko þá verður maður að kaupa vöruna ef manni býðst hún ódýrari en út úr búð. HALLÓ - kannski bara ættirðu að safna aðeins lengur eða vera án vörunar sem er svo dýr??

Eitt enn, svona fyrst ég sit hérna að skrifa - þá verður það að koma fram að lopapeysan MÍN var kláruð í dag - sett í þvottavélina og liggur nú til þerris inni á rúmi. Svo er það bara að pressa hana og nota :o) Hafði smá áhyggjur af því að hún væri og lítil - kemur í ljós að ég prjóna kannski helst til fast - en not to worry, hún passar sæmilega, ég kemst alla vega í hana. Þannig að mín kæra systir - þú færð hana ekki ;o Nú þarf ég bara að fara í fyrramálið í Álafoss og kaupa mér meiri lopa því næsta verkefni bíður :o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sko þig ég er einmitt búin með lopapeysuna á Huldu Karen. Á bara eftir að setja rennilás í hana. Og held hún passi bara á hana ;). Kv Helga
Lóa Björk sagði…
Frábært :o) Þú þarft að byrja á næstu því þær vaxa svo hratt þessar skottur okkar. KBB fékk lopapeysu í vor og þá bretti hún upp stroffið - núna er stroffið komið niður og ætli hún þurfi ekki nýja eftir jólin eða í vor :o) Er með næstu peysu fyrir hana í huganum :o)
Nafnlaus sagði…
Svo er bara spurning hversu mikið hún verður notuð, ég er ekki viss um að Hulda Karen þoli lopa ;).
Lóa Björk sagði…
ég gekk úr skugga um að þau myndu bæði nota peysurnar sínar ÁÐUR en þær voru prjónaðar ;o)
KBB notar sína nokkuð mikið en KEB notar sína við útburðinn og kannski á hann eftir að nota hana vel í vetur þegar kólnar - hún er svo rosalega heit :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...