Frumburðurinn er 14 ára í dag - Finnst svo stutt síðan hann vakti okkur með látum aðfaranótt föstudagsins 6. október 1995. M.a.s. BH (sem ekkert man) man vel eftir þessari nótt og morgni :o) Það var ekkert rosa leiðinlegt að fá hann í fangið rétt fyrir klukkan sjö um morguninn - no wait, fengum hann víst ekkert í fangið fyrr en um áttaleytið sennilega því læknirinn rauk með kríla upp á vökudeild til að tékka á drengnum. En ljósmæðurnar sögðu að honum yrði sparkað strax niður aftur því hann væri heilbrigður og flottur strákur þrátt fyrir að koma 4 vikum fyrir áætlaðan komudag. Það gekk eftir og við fórum með hann heim fjórum dögum síðar og síðan þá hefur hann látið okkur snúast í kringum litla rassinn á sér :o)
Hann fékk afmælisgjöfina sína í morgun. Rosa flotta úlpu sem gaurinn valdi reyndar sjálfur því ekki er mömmunni treystandi lengur til að sjá um fatakaup. Ég hins vegar neitaði að leyfa honum að fá úlpuna fyrr en í dag - innpakkaða og fína. Hann alveg hissa í morgun, setti upp clueless fésið og spurði í forundran... "hvað skyldi þetta vera?"
Úlpan reyndist vel við hæfi því fyrst snjór vetrarins féll hérna hjá okkur í Mos í nótt. Svo þetta var greinilega allt útpælt í undirmeðvitundinni!
Later

Ummæli
Gaman að sjá blogg hér á ný;o)
Afmæliskveðjur Svandís
;0) sammála Svandísi - gaman að sjá þig blogga á ný - verður að halda áfram þú ert svo góður penni ;0) kv. Magnea
KEB er meðvitundarlausasta barn norðan Alpafjalla - hann telur sig vera búinn að bjóða Agnari, en það kæmi mér ekki á óvart að hann hafi klikkað á því. Hann stóð við hliðina á Óskari og taldi upp að hann væri búinn að bjóða honum en Óskar kannaðist ekkert við það. Ýtti svo við honum að bjóða í hvelli þeim þremur sem hann taldi sig eiga eftir og ég er viss um að hann hafi gleymt að hringja - það eru engin takmörk, er að verða léttgeggjuð á gullfiska minni drengsins. Það er víst nóg að ég sé utan við mig og gleymin...
Ég ítreka við hann að bjóða drengjunum á morgun, þótt seint sé. Alla vega ADH er boðið á morgun kl. 18 í Leirutanga 1 í afmæli hjá KEB :o)