Fara í aðalinnihald

Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið...

Þegar ég las í mogganum um daginn um strákfíflið í Sandgerði sem var einn af nokkrum sem gengu í skrokk á skólafélaga sínum varð ég pirruð. Gormurinn svona flottur íþróttamaður - í boxi. Notaði það sem hann hefur lært til að valda sem mestum skaða á fórnarlambinu. Ég minntist á það við Baldvin að gaurinn er með þessu athæfi sínu að eyðileggja fyrir öllum þeim sem vilja iðka þessa íþrótt og þeim sem börðust fyrir því að fá hana leyfða aftur eftir áratuga bann. Og nú var ég að lesa þessa frétt á mbl.is. Vona að þessi drengur sé stoltur af afreki sínu. Held að það séu margir sem æfa box hugsi honum þegjandi þörfina þessa dagana. Vona að hann fái hiksta blessaður.

Ég ætla að leyfa mér að halda fram að box sé ekki endilega mikið ofbeldisfyllri íþrótt en karate, tae kwon do og fleiri bardaga íþróttir. KEB var að æfa karate á sínum tíma og trúið mér, trikkin sem hann var að kenna systur sinni og lýsa fyrir henni skaðanum sem hvert þeirra veldur voru ekki falleg. Og á sýningum léku þau eftir svona sýndarbardaga. Þar sem krílin tóku sér stærri nemendur og jafnvel kennarann í bakaríið. Allt náttúrulega leikið og enginn raunverulegur skaði hlaust af!

Hins vegar var það þannig frá degi eitt að krökkum sem byrjuðu var gert það ljóst að þau fengju ekki að æfa lengur ef þau notuðu það sem þau lærðu þarna gegn öðrum börnum. Yrðu rekin úr félaginu strax. Þeim var innrætt (kannski var það bara ég) að karate er sjálfsvarnaríþrótt, ekki árásaríþrótt. Best að taka fram líka að Katan var uppistaðan í æfingum - ekki slagsmál.

Er það ekki líka þannig að þeir sem ganga í skrokk á öðrum byrja ekki á því af þeir læra box. Þeir myndu mjög sennilega gera það þó þeir hefðu aldrei lært að slá og berja. Held að íþróttin box sé ekki mesta vandamálið hjá þessum dreng. Það er eitthvað annað sem er að pirra hann. Spurning um að ráðast að rót vandann og hætta þessum boðum og bönnum endalaust.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég er svo sammála, það ætti að víkja honum strax úr félaginu og leita svo að rót vandans...alltaf einhver einn sem nær að skemma fyrir öllum hinum HMS
Lata húsmóðirin sagði…
Get nú ekki verið sammála um að afnám boxbannsins hafi verið mistök. Það er og verður alltaf til fólk sem misnotar aðstöðu sína, en auðvitað á að banna drengnum að æfa box eftir þetta. Annars vona ég að mínir drengir hafi ekki áhuga á bardagaíþróttum alveg sama hvaða íþróttir um ræðir. Gæti sko aldrei horft á þá keppa!!!
Lóa Björk sagði…
Blessuð vertu - þetta er svo saklaust í Karate að það hálfa væri nóg. Það er mest keppt í Kata æfingum, það er bara rútína af karatehreyfingum, og svo eru þau púðuð upp ef á að sparka og slá. Stranglega bannað að slá og sparka utan púða :o) Svo fá þau stig fyrir að hitta á rétta staði - þurfa ekki að sparka fast!

Held að það ætti að banna svona vitleysinga - ekki í íþróttina :o) - Veit ekki alveg hvernig maður fer að því samt he he

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...