Fara í aðalinnihald

Sorry

Hef ekki tíma til að blogga - er að ryksuga hárin eftir hundana! Crying outloud það fellur af þeim núna. Og þau þrjú sem lofuðu og lofuðu að ryksuga daglega ef þau fengju hund/Husky... ja þau láta bara ekki sjá sig!

iRoomban bilaði, réttara sagt framdi sjálfsmorð. Enginn veit hvers vegna - sennilegast er að henni hafi þótt jafn leiðinlegt og mér að ryksuga. En við fengum nýja í stað þeirrar sem gaf upp öndina. Hef ekki sett hana í gang hins vegar því gamla sófasettið fór ekki fyrr en í gær og allt búið að vera í drasli hérna. Þannig að nú þegar settið er farið og smá rými hér til að anda aftur þá verður hún sett í fulla vinnu frá og með deginum í dag. Er bara að taka það mesta hérna svo greyið fái ekki sjokk og fyrirfari sér líka eins og fyrirrennari hennar!

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
þetta lýst kellunni vel á ;) nýtt blogg og ný tík á heimilið ;) HMS

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...