Fara í aðalinnihald

Hvolpur - ekki hvolpur

Síðan um miðjan desember höfum við velt fyrir okkur hvenær tíkin fari að lóða hérna. Þruma systir hennar byrjaði þá og við héldum eðlilega að Ronja myndi vera á svipuðum tíma. En það er nú eitthvað annað - eitthvað seinni til.

Á gamlárskvöld fórum við með hana yfir til Hörpu og Gumma. Breki sem venjulega nennir henni mátulega, hékk í rassinum á henni svo við héldum að nú væri þetta að byrja - hlýtur að vera. En nei ekkert gerðist.

Fór í hesthúsin með hundana í síðustu viku - þar hékk Týri í rassinum á henni, límdur við hana. Og hann virkilega leggur fæð á tíkina sem neitar að surrender þegar hann þessi virðulegir hundur mætir á svæðið. Þannig að nú hlýtur hún að fara að byrja.

Fórum til Tinnu í fyrradag og hittum það Indý og svo kom Rannveig með Apríl. Það var fjör og mesta furða hvað hundarnir voru spakir. Engin leiðindi og ekkert urr - mesta lagi í Úlfi sem aðeins lætur heyra í sér til að reyna að hræða þessar stóru tíkur. það er ekkert að virka sérstaklega vel hjá honum samt. Apríl og Indý höfðu mikinn áhuga á afturendanum á Ronju - benti sterklega til að eitthvað væri að byrja að gerast.

Ronja búin að vera heldur róleg síðustu daga - liggur bara spök svona eins og hún sé í mikilli afslöppun að hugleiða tilgang lífsins. Áðan lá hún í stofunni í bælinu sínu og Úlfur eitthvað eirðalaus gekk að henni og reyndi störukeppni. Starði á hana í nokkrar sekúndur og stökk svo upp á öllum fjórum í einu og beint á hana. Sennilega haldin death wish - annars myndi hann ekki ögra henni svona.

Nú byrjuðu dagleg átök og þau hlupu inn í hol og tókust þar á í smá stund. Þegar ég loks stóð upp frá bókhaldinu (vsk í dag) þá tók ég fyrst eftir einum inniskó frá BH og einum strigaskó frá mér í holinu. GRR sökudólgurinn er Úlfur - rak þá augun í tvö pör af ullarsokkum í forstofunni - GRR sá hefur haft nóg að gera þegar ég sat og hélt hann væri sofandi. Sá svo inni í þvottahúsi að búið var að dreifa úr peysunni minni yfir gólfið - par af nælonsokkum ekki á sínum stað og hann var greinilega búinn að gera heiðarlega tilraun til að toga þrjár flíkur út í gegnum götin á þvottakörfunni. Busy litle puppy! Mér fannst þetta mátulega fyndið - en ætla að fylgjast betur með honum núna því það þarf að standa vitleysinginn að verki til að skamma hann. Sem betur fer eyðilagði hann ekkert - en það stóð tæpt með rándýru strigaskóna mína sem ég keypti á Kastrup í sumar! Þess má geta að hann er búinn að merkja inniskóna mína allrækilega. Reglulega þegar ég kem heim þá er annar skórinn minn horfinn og hinn bíður einmana eftir mér.

Anyways - í látunum í þeim áðan þá slettist blóð hér út um allt - tók eftir því þegar ég var búin að hirða upp eftir Úlf. Þannig að tíkin virðist hafa byrjað að lóða í fyrsta sinn í dag!

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
úúú congrats ;) HMS
Lóa Björk sagði…
já þetta jafnast á við fermingu - hún hlýtur nú formlega að teljast elsta barn heimilisins ha ha ha. KEB verður svekktur mar!
Nafnlaus sagði…
Litla stúlkan bara orðin svona fullorðin, milestone :)

en voðalega finnst mér gaman að lesa sögurnar um samskipti á milli hundanna, minnir mig nefnilega svoldið á samskipti barnanna á þessu heimili ;)

kv. ellen
Lóa Björk sagði…
gaman að heyra að einhver nenni að lesa og hafi gaman að. Velti nefnilega fyrir mér stundum hvort ég sé alveg orðin biluð - blind hundakerling :o)

Það er dálítið magnað hvað þau minna stundum á okkur mannfólkið - þau eru týpur alveg!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...