Fara í aðalinnihald

Sjokk - átök og fjör

BH: Ég er í sjokki - Lóa ég er hættur við !

Fengum skemmtilega heimsókn í gær. Rannveig, Lúlli og Svenni komu í heimsókn í gær til að líta á frænku hennar Apríl. Og að sjálfsögðu fannst þeim hún æðisleg, Rannveig vildi meina að við værum heppin með hvolp því hún var svo róleg. Ronja er nefnilega letidýr eftir kl. 21 á kvöldin. Þá kúrir hún bara og hvílir sig, við þurfum að draga hana út með töngum á miðnætti til að fara út að pissa fyrir nóttina.

Það var ekki talað um neitt nema hunda og aftur hunda. Veit ekki hvar þetta endar, en við skemmtum okkur vel og margar sögurnar voru bráðskemmtilegar.

Svo kárnaði gamanið því ákveðið var að sækja Apríl út í bíl. Apríl er Siberian Husky frá Hulduheimi, eins árs síðan í apríl. Við settum Ronju í taum og drógum hana fram í hol til að hitta frænku sína. Ég veit ekki hvort fékk meira sjokk, BH eða Ronja. Litlu leist ekki meira en svo á stóra frænkuna til að byrja með. Apríl var í taumi, spök og róleg. Ronja svona skoðaði málið í öruggu skjóli KEB sem strauk henni og tjáði henni að þetta væri nú allt í góðu.

BH fannst Apríl heldur stór og trúir ekki að Ronja eigi eftir að stækka svona mikið. Vill held ég bara hafa hana svona títlu áfram. Sagðist hættur við bara, púff. En ég held hann myndi vera fljótur að ná í hana ef hún færi. Hann huggaði sig við að hann tæki ekki eftir því þegar hún stækkaði. Ronja yrði alltaf heppileg stærð því hann venst henni jafnóðum. Rannveig sagði Apríl vera í stærra lagi, hin tíkin þeirra, Indý, er minni og nettari.

Ronja færðist öll í aukana - vaknaði aðeins og heilsaði frænku sinni. Svo var bara farið í leikgírinn og allt varð vitlaust. Þ.e. litla krílið stökk eins og héri á þessa stóru sem lét sér fátt um finnast. Þá taldi sú litla sig hafa þetta allt í hendi sér og færði sig upp á skaftið, hékk í Apríl og skoppaði um allt.

Það fór þó svo að stærri tíkin missti þolinmæðina gagnvart þeirri yngri og tók aðeins á henni. Rétt að sýna henni hver virkilega réði í þessu sambandi. Á endanum hringsnérust þær frænkurnar hvor á annarri í góða stund og það var virkilega gaman að fylgjast með þeim. Því þessi eldri svona hafði lúmskt gaman að, t.d. lagðist niður svona til að fá þessa litlu til að vaða í sig og halda áfram. Leikurinn var þó heldur ójafn því Apríl var í taumi allan tímann. Ég tók vídeóvélina og myndaði fjörið, það verður gaman að horfa á það aftur.

Það var gaman að sjá fullvaxinn hund svona í návígi á sínu heimili. Hughreystandi að sjá hversu blíð og ljúf Apríl er. Við BH erum svona að vona að við getum alið okkar tík vel upp þannig að gaman sé að eiga hana og að hún sé húsum hæf innan um fólk. Rannveig vildi meina að Ronja lofaði góðu, væri gullfalleg og virtist róleg og góð. Minntist á að spennandi væri að sjá Ronju og Indý saman því þær virkuðu líkari týpur, en Ronja og Apríl. Spurning hvort Indý myndi sýna Ronju svo mikla þolinmæði líkt og Apríl gerði.

Setti þrjár myndir inn á Flickr síðuna mína - kíkið á hana. Ef einhver hefur áhuga á að koma og kíkja á hana í eigin persónu þá eru allir velkomnir. Ætla bara að koma því að, að hún stækkar rosalega hratt, verður ekki lítil lengi. Um jólin verður hún nánast í fullri stærð.

Hvolpakerling

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Dem verð að fara að koma og kíkja í heimsókn. Á ekki von á öðru en ykkur takist vel upp. Þetta er alveg gullfallegur hundur. Kv Helga.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...