Ætluðum að vera í Skorradalnum um helgina, mikið búin að ræða það. Það er verið að pússa, grunna og mála húsið þannig að BH er að hjálpa í því öllu saman. Á fimmtudaginn uppgötvaði ég að ég hafði ekkert beðið um frí í útburðinum - gáfuð. Þannig við bárum bara út en brunuðum í dalinn á laugardagsmorgninum og komum heim aftur um kl. 20.
Það var ekki mikil hjálp í mér þarna því ég druslaðist bara í kringum fólkið sem var að vinna og endaði svo í sófanum og sofnaði - eins og ég veit ekki hvað.
Er við komum heim bárum við KEB út á meðan BH græjaði kvöldmat fyrir okkur, næringaríkar pylsur steiktar á pönnu og soðið spaghetti. Þeir feðgar höfðu ákveðið að drífa sig í bíó kl. 23:10 - power sýning á Batman. BH útskýrði fyrir mér að power sýning þýddi að hljóðið væri keyrt upp meira en venjulega. Já sæll félagi, eru ekki nógu mikil læti í bíó á venjulegri sýningu. Maður kemur varanlega heyrnarskertur úr bíó í hvert skipti.
Við mæðgur urðum eftir og sú stutta ekki sátt við að vera send í rúmið kl. 22. True Lies byrjaði um 22:30 og við byrjuðum að glápa á hana. Já já bönnuð börnum I know. Ég dró Ronju hérna til okkar í stofuna til að geta fylgst með henni. Vil síður að hún sé á vappinu ein um húsið því hún pissar enn inni ef við grípum hana ekki á réttum augnablikum til að fara út. Í stuttu máli þá sváfum við Ronja alla myndina og KBB sat ein og glápti og skemmti sér bara ágætlega.
Við BH erum enn að kljást við hvolpinn, hún er voða ljúf og góð en er samt í því að glefsa í okkur og jafnvel urrar stundum að okkur. KBB ræður ekkert við hana en KEB lætur hana ekki vaða yfir sig. Hulda hringdi í mig á föstudaginn og við ræddum saman. Hún benti mér á að tala við Ástu, hundaþjálfara, og athuga hvort hún gæti leiðbeint okkur. Það ætlum við að gera - höfum aldrei átt hund áður og viljum gjarnan fá smá leiðbeiningar og ráð. Hulda er samt búin að raða í okkur upplýsingum sem við höfum reynt að fara eftir. En það er samt alltaf gott að hafa einhvern til að sjá hvað maður er að gera og leiðbeina manni. Planið er að hringja í Ástu á morgun.
Later

Ummæli