Fara í aðalinnihald

Föstudagsmatur

Matur hjá tengdó er orðinn fastur liður á föstudagskvöldum. Í kvöld vantaði hins vega helminginn af liðinu. Og við sem mættum, BH og fjölsk. og Erna með dömurnar ásamt gestgjafanum, skemmtum okkur ágætlega. Fyrir utan að hafa étið of mikið þá var þetta verulega gott allt saman.

Skemmtilegast þótti mér samt þegar Erna talaði um að nú væri planið að ráða eina frá Rúmeníu í vinnuna hjá henni. Hún tilkynnti yfirmanni sínum að nú skyldi hann skoða málið vel áður. Þ.e. hvort ekki væri gott á milli Serbíu og Rúmeníu svona almennt í alþjóðamálunum. Það er nefnilega svo að serbnesk kona með sterkar skoðanir á mönnum og málefnum vinnur á staðnum og Erna sagðist bara ekki taka það að sér að vera einhver friðargæsluliði á staðnum :o)

Stefanía litla fékk bleikan blómvönd frá ömmu sinni í tilefni dagsins. Hún var að ljúka sinni vist í leikskólanum í dag og hefja skólagöngu í Háteigsskóla með pomp og prakt. Sú stutta var aldeilis sæl með fína vöndinn sinn.

Kom í ljós að þetta er merkisdagur, Stefanía að byrja í sex ára bekk, Thelma að fara í 10. bekk, Jón Gísli byrjar í MH í dag, KEB og Anton byrja í unglingadeildinni, Aron Frosti byrjaði hjá dagmömmu og Íslendingar UNNU Spánverjana í handboltanum. Held það hafi nú verið eitthvað meira - man bara ekki hvað.

Við ræddum mikið forsetafrúnna og hennar innslag í viðtalið við Ólaf Ragnar, er hún svona skaust inn í mynd fyrir aftan forsetann og hrópaði að Ísland væri ekki lítið - heldur stórasta land í heimi - magnað augnablik. Þið vitið svona eins og krakkar að skoppa fyrir aftan viðmælendur í von um að komast í mynd moment!

Er við kvöddum frúnna á heimilinu bað hún sonarson sinn, KEB, að taka fyrir sig ruslið og henda því. Heyrist þá heldur dauft í mínum - já já Stefanía fær blóm og ég fæ ruslið :o)

Until next time

Ummæli

Nafnlaus sagði…
haha já það læra börn sem fyrir þeim er haft - tilsvör BH hljóma orðið í gegnum KEB ;0) það er ekki leiðinlegt að sú arfleið haldist híhí kv, Maddamamma
Lóa Björk sagði…
Það er nú samt best þegar hann bakar pabba sinn - það getur verið mjög spaugilegt :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...