Ég og Ronja höfum verið meira og minna einar í dag. Í morgun er við KEB fórum að bera út vakti krílið BH og þau tókust á í morgun. Spurning hvort var þreyttara eftir átökin. Hún er svona að prófa hvað hún kemst upp með og við erum að reyna að láta hana vita að á þessu heimili höfum við völdin og ætlum okkur að halda þeim.
Í dag tókum við svo rispu vinkonurnar öðru hvoru. Hún er fljót að læra en er hrikalegur þrjóskupúki. Bara fyndið þegar hún situr á miðju gólfi og ég kalla á hana, eða tala til hennar í rólegheitum, þá snýr hún sér svona pent í hina áttina til að láta mig vita að henni sé alveg sama. Svona eins og fín frú í Vesturbænum myndi gera ef ég vogaði mér að ávarpa hana. Svona hegðun á hún víst ekki að komast upp með svo ég læt mig ekki, já eða þannig, reyni alla vega að vera föst fyrir.
Þetta hljómar eins og við séum hrikalega vond við hana greyið og börnunum mínum finnst við ekki fyrirmyndarforeldrar. Varla hæf til að eiga hvolpinn, en það er víst þannig að það þarf að sýna þessum (husky) krílum hver stjórnar á heimilinu. Annars endar maður með control freak fljótlega. Hver vill láta hund stjórna heimilinu sínu? Bara spyr! Við erum ekki skemmtileg á köflum og líður eiginlega illa í hvert sinn þegar taka þarf á henni greyinu. En við erum líka óspör á hrósið og klappið þegar hún gerir vel og eins og henni er sagt.
Búrið hefur verið tekið meira í sátt. Hún leggst þar inn sjálf stundum, og stundum er hún kyrr þar inni er við setjum hana þangað þó búrið sé haft opið fyrir hana. Hún verður að fá að vappa aðeins um í hvíldinni sinni, hún er að teygja svo mikið úr sér og sefur þannig að hún tekur dálítið pláss. Kúrir sig ekki endilega saman. Var að hugsa það í dag að það er eins og hún sé að teygja úr sér til að stækka í hverri teygju.
Hún er dugleg að gera þarfir sínar úti þegar við förum með hana út. Við erum líka dugleg að fara með hana mjög reglulega til að forðast slys hér innandyra. Þvílík skítalykt í húsinu þegar þannig slys verða, púff - ólíft á staðnum.
Ég þurfti að komast í smá bæjarleiðangur - ýmislegt sem þurfti að útrétta og ekki hægt að redda á netinu. Sorpa - Borgarbókasafnið - Rúmfatalagerinn - hreinsun og hundabúðin í Mos. Ekki vildi ég skilja krílið eftir eina og helst ekki hjá krökkunum einum eins og í gær. BH kom því heim um kl. 16 og ætlaði að vera heima. Ákváðum að prófa að setja búrið hennar út í bíl og taka hana bara með okkur í bæinn.
Hún var nú ekki sérstaklega hrifin, ýlfraði og vældi ein í skottinu. Þetta var mest óöryggi í henni bara þegar bíllinn var á ferð. Ég stökk inn á öllum stöðum en BH sat eftir hjá henni út í bíl. Svona svo fólk sem gengi framhjá myndi ekki kæra okkur fyrir illa meðferð á dýrum ef það heyrði í henni vælið. Trúið mér hún er nokkuð góð í að vekja meðaumkun hjá fólki, eiginlega snillingur. En hún var nokkuð spök þegar bíllinn var stopp, þannig í raun hefði hann alveg getað komið með mér inn í búðir. Held það hafi hentað honum betur að hinkra, búðir ekki í uppáhaldi.
Er við héldum heim á leið var hún alveg hætt að væla, orðin nokkuð sátt og vön hristingnum í bílnum. BH keyrði voða rólega þannig að það væri minna um snöggar hreyfingar í hringtorgum o.þ.h. Ég endaði í Hundaheimi - búð hérna í Mos og keypti smávegis sem ég taldi okkur vanta. Hef ekki verið að rjúka í að kaupa allt, er svona að komast að þessu öllu saman í rólegheitum.
Ætlaði nú ekki að hafa þetta svona langt - en oh well, hef aldrei kunnað að stoppa!
Later

Ummæli