Er að spá í að flytja til Afríku eða afskekkts þorps í Asíu. Einhvers staðar sem ekki er skólaskylda. Fór í dag með krökkunum að kaupa skólavörur. Við vorum búin að finna til allt sem til var á heimilinu og hægt var að nota aftur. Það var dágóður slatti sem þau áttu. Ég þurfti ekki að kaupa dýra hluti eins og skólatöskur eða neitt þannig. En þau eru dugleg að tapa yddurum, reglustikum o.þ.h. KBB tók að sér að týna pennaveskinu síðan í fyrra þannig að það þurfti að endurnýja það talsvert þó hún eigi tré- og tússliti samt.
Ég fór bara bjartsýn í Office 1, urðum að fara í Skeifuna því þar er hún Thelma okkar að vinna baki brotnu. Eins og áður sagði vorum við búin að finna fullt til hérna heima sem þau þurfa í vetur. Okkur gekk vel að finna það sem upp á vantaði, ekki svo mikið að gera og ekki mikill troðningur. Ekki kílómetra langar raðir og allt í orden.
Kom að kassanum eftir að hafa fundið allt saman, spjölluðum við Thelmu, að sjálfsögðu fórum við á kassa til hennar. Litlar rúmlega sautján þúsund krónur - góðan daginn er ekki allt í lagi? Aðeins búið að smyrja á milljón prósent álagninguna. Nota bene, ég kom ÖLLU í einn poka - þannig að þetta var nú ekki þvílíka magnið af drasli. Ég bara spyr - eru einhverjir foreldrar skólabarna ekki að fara á hausinn? Það eru örugglega margir sem þurfa að kaupa meira skóladót en ég - svo ég tali nú ekki um skólatöskurnar sem eru komnar vel á annan tug þúsunda ef maður kaupir þessar sem eru svo agalega rosalega ferlega góðar fyrir bakið og kroppinn og heilsuna. Ég get svarið það - það er alveg spurning um að flytja til Úganda bara, eða nei - það er engin spurning.
Veit að það eru fleiri en ég í vægu sjokki yfir verðinu á þessu drasli. Þegar ég fór til Jóns læknis um daginn fór ég eftir tímann í blóðprufu og þar inni var ein starfskonan í símanum við manninn sinn (geri ég ráð fyrir) og hún var á blístrinu yfir verðinu á skólatösku fyrir barnið sitt, sem ég gat mér til um að væri að byrja í skóla 6 ára. Hún var að fara á límingunum og sagðist bara ekki taka þátt í svona kjaftæði og ætlaði eitthvað að finna ódýrara og bara finna liti heima sem barnið átti fyrir. Hún var nefnilega líka í áfalli yfir verðinu á pennaveskjunum - yfir 2000 krónur ef þau eru keypt með öllu í - og þá er gott að vita að þannig pennaveskjum fylgja rusl litir og blýantar. Það er alla vega mín reynsla.
Í listanum hennar KBB var sérstaklega tekið fram að teygjumöppur áttu að vera rauð, blá og glær. Við eigum þannig möppur í magni, 7 stk eftir fyrri ár. Engin í umræddum litum, jú ein rauð. En hún var svo slitin að mig langaði ekki að senda dömuna með hana í skólann. Svo ég ákvað að vera með mótþróa og benti á bleiku möppuna og sagði henni að þetta væri hennar rauða mappa, fjólubláa var hennar bláa og svona brúnglær var hennar glæra - og hananú. er ekki að fara að kaupa fleiri svona möppur og láta þessar liggja ónotaðar upp í hillu á meðan. Reynsla mín er sú að svo nota þau ekki helminginn af þessu sem maður er látinn kaupa dýrum dómum.
Fékk það líka staðfest er ég sat með KBB að merkja allt heila klabbið. Þá var hún að rifja upp þegar kennarinn hennar í 3. bekk bað hana að lána sér úrklippu- og verkefnabók sem daman átti ónotaða ofan í skúffu. KBB horfði á kennarann strika yfir nafnið hennar og merkja hana bekkjarbróður sínum og afhenda honum bókina. Come on - á ég að borga bækur ofan í vandræðapésa sem ekki koma með bækurnar í skólann? Mér var dálítið misboðið og varð bara pirruð við þessar fréttir. Minnug þess að hafa keypt vörur fyrir 17 þúsund 30 mínútum fyrr.
Röfla þá smá meira - af hverju mega krakkar eins og KEB sem er að fara í 8. bekk ekki kaupa gormabækur. Þau eru látin kaupa stílabækur í magni sem síðan eru lítið notaðar, kannski 5 bls. yfir veturinn. Hvaða bull er það? Hann er að nota sömu stílabókina núna þriðja árið í röð því bókin er svo lítið notuð. Mér dettur ekki í hug annað en að endurnýta þessar bækur, og hann er alveg sáttur við það svo það er gott. Ég ræddi þetta aðeins við kennarana hans í fyrra. Þær svöruðu því þannig að það væri svo mikill tætingur með gormabækur. Ég held að það sé bara vitleysa því ég notaði gormabækur frá 12 ára aldri og man ekki eftir neinum vandræðum í kringum það. Svo rífur maður blaðsíðurnar úr og setur í möppu með skilblöðum á milli.
Þetta blogg átti að vera fjórar línur - var bara í sjokki yfir verðinu á þessu skóladóti - ókeypis skólaganga hvað? Svo bara eins og venjulega blaðra ég og blaðra, eeeendalaust. Tek fram að ég þekkti skutluna á kassanum svo ég slapp aðeins betur en 17 þús kallinn, fékk dálítinn velþeginn afslátt.
Later

Ummæli