Á að vera að lesa en það er svo auðvelt að finna sér annað að gera. Ætti samt að hafa vit á að hafa nefið bara í skólabókunum eftir gærdaginn. Þá var ég líka dugleg við að gera eitthvað annað.
Sótti tölvupóst og fékk bréf frá kennara KBB þar sem tilkynnt var að krakkarnir væru að læra á klukku. Það reyndist sumum börnum frekar erfitt, svona korter gengin í 12 hugtök. Hún benti á nams.is þar eru klukkuverkefni, ég þangað að kíkja. Þegar ég var í alvöru búin að eyða þremur mínútum í klukkuverkefni - jamm fór að leysa þau - þá fór ég að hugsa - bíddu kanntu ekki á klukku? Væri ekki nær að lesa pínu meira? Lokaði forritinu og sneri mér að bókunum en um leið hringdi síminn. Smá spjall. Svo endaði ég á Facebook og kíkti á eitthvað myndband hjá Ósk Laufey um einhverja strípalinga sem náðu saman. Semsagt nudists sem náðu saman. Mér fannst mest spaugilegt að sjá að þau voru bæði næpuhvít á rassinum. Ef maður býr í Ástralíu, eins og gaurinn gerði, og alltaf að striplast í garðinum sínum í sólinni - ætti maður þá ekki að vera brúnn á allann kroppinn? Svo ég ákvað að gera athugasemd á myndbandi hjá henni um þetta. Það tókst hins vegar ekki betur en svo að ég sendi endemis myndbandið á alla í mínum vinalista - það var alls ekki ætlunin að senda vinum og kunningjum myndband um strípalinga! Þannig að aftur hugsaði ég að sennilega væri best að halda sig bara að bókunum og reyna að læra smávegis, því ég er ekkert að finna allt of mikið út úr þessu facebook. Finnst það kerfi ekki mjög aðlaðandi - frekar mikill frumskógur eitthvað.
Og núna enn og aftur ætti ég að vera að læra en er að finna mér ástæður til að gera eitthvað annað - best að halda áfram að spá aðeins í þróun velferðarríkisins.
Later

Ummæli
kv. GAMLAN í þrastarhöfða