Fara í aðalinnihald

Það eru engin takmörk

Not even the sky - Ég tala stundum um það hvað sonur minn sé utan við sig - hann hefur það að hluta frá mömmu sinni, en pabbi hans er ekki mikið skárri.

Við hjónin toppuðum okkur núna - erum í sjokki yfir meðvitundarleysinu í okkur. Í síðustu viku pantaði ég flug fyrir BH til Vínar, rándýrt og ekki verjandi að borga tæplega 200 þús fyrir ferðina. Töluðum við Walther og komumst að því að betra væri ef þeir hittust í Brussel og myndu svo fljúga þaðan saman til Vínar. Það krafðist þess að ég myndi breyta fluginu til Vínar til Brussel, sem ég og gerði. Jafnframt var nauðsynlegt að fljúga út einum degi fyrr, þ.e. 19. maí í stað þess tuttugasta.

Anyways - ég vaknaði í morgun, bar út, kom börnum í skólann og fór svo í vinnuna - skildi manninn eftir sofandi heima. Kl. 10 mætti hann samviskusamlega og af rælni ákvað hann að athuga hvenær á morgun hann myndi fljúga. Svo var bara hrópað - LÓA - ég trúi þessu ekki - ég er að fljúga út klukkan eitt. Ég missti úr slag, leit á klukkuna - höfum þrjá tíma til að pakka og koma honum út á völl. Sem reyndar er minnsta málið, meira mál er að klára ákveðna hluti áður en hann lætur sig hverfa í þrjá daga úr vinnu. Þannig að nú bíð ég eftir að hann stigi úr sturtunni, búin að pakka og svo erum við farin út á völl.

Það er eins gott að ég er farin að hafa vit á því að panta flug kl. 13 en ekki kl. 8 þegar það skiptir ekki máli hvenær hann er kominnn á staðinn. Púff - hann hefði misst af fluginu í morgun - alveg pottþétt ef ég hefði af gömlum vana pantað flug kl. 8 til Köben.

En svona er sveitaloftið í Mosfellsbænum, maður verður svo kærulaus og afslappaður að það eru engar áhyggjur af smáatriði eins og að ná einni flugvél á réttum tíma. Það er samt eins gott að við munum það tímanlega áður en við fljúgum fjölskyldan saman í sumarfrí. Það er aðeins meira mál að pakka okkur öllum í einhverjar vikur.

Well gotta go - have að plane to catch

Ummæli

Lata húsmóðirin sagði…
Úff ég hefði sko fengið feitt hjartaáfall. En svo jafnað mig og drifið mig af stað.
Lóa Björk sagði…
Já fengum svona vægt sjokk - aðallega vegna kæruleysisins í okkur - trúðum ekki að við hefðum gleymt þessu. Það var ekkert mál að koma honum af stað þannig séð.
Nafnlaus sagði…
Boarding time is for tourists.

b

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...