Eitthvað hefur mér mistekist uppeldið á dóttur minni og ég velti því fyrir mér hvort ég geti bætt þar úr. Þau systkin eru að horfa á Skólahreysti í sjónvarpinu og skemmta sér vel. Ég sig hér inni í herbergi og er að lesa. En heyri samt allt í einu stelpuna segja "stelpur eru bara aumingjar". Þar höfum við það - dömurnar í keppninni eru ekki að ná sama styrk og drengirnir og þá eru þær bara allar og við allar aumingjar. Ekkert verið að skafa af því neitt.
Ég kallaði inn hvað hún hefði sagt og þá heyrðist bara hlátur og svo hið klassíska "ekkert". Ég tjáði mínum börnum að ég væri greinilega ekki stelpa - ég er nefnilega enginn aumingi.
Later
Ég kallaði inn hvað hún hefði sagt og þá heyrðist bara hlátur og svo hið klassíska "ekkert". Ég tjáði mínum börnum að ég væri greinilega ekki stelpa - ég er nefnilega enginn aumingi.
Later
Ummæli