Við mæðgin vöknuðum um kl. 5 í morgun, get ekki sagt að mig langaði út í snjóinn. Byrjaði heldur brösulega hjá okkur, fengum 24 Stundir en ekki Morgunblaðið og þurftum því að bíða smá stund á meðan brunað var með það til okkar í hvelli. Vorum því heppin að vakna snemma til að geta lokið þessu fyrir klukkan 7. Hann fékk götu sem er ekki alveg næsta gata við okkur þannig að við keyrðum bara á staðinn til að flýta fyrir okkur. Byrjuðum á því að skafa bílinn í fyrsta sinn þennan morgun. Það gekk ljómandi vel að bera allt út, frekar auðveld gata og ekki löng, um 50 hús. En þegar við vorum að verða búin sáum við að ekki var nóg af Morgunblaðinu munaði tveimur húsum - endemis vesen - kláruðum götuna, skófum af bílnum í annað sinn og drifum okkur heim. Ég hringdi og lét vita að tvö blöð hefði vantað (tel mig hafa merkt súper vel við og ekki sett tvo mogga neins staðar), en við plötuðum Pétur greyið til að láta okkur fá 2 blöð til að við gætum klárað - þá þurftu þeir ekki að bruna annað sinn til okkar og bara með 2 blöð. Við mæðgin lögðum því í hann og skófum í þriðja sinn, nú með tvö blöð sem þurfti að koma út. En þetta kostaði það að við fengum ekki Morgunblaðið í morgun og ekki heldur Gummi og Harpa - því Pétur átti bara 2 blöð auka í þetta sinn. Eitthvað fæ ég að heyra það núna að hafa rænt þau blaðinu því Pétur er búin að vera svo almennilegur síðustu viku að lauma mogganum til okkar af aukablöðunum sínum, og svo rænum við af þeim blaðinu núna. Við alla vega teljum blöðin á morgun til að vera viss um að vera með nóg áður en við byrjum morgungönguna.
Ég er voða hress eftir göngutúrinn, tók ekki nema 40 mínútur, vona að ég sofni ekki standandi í dag einhvers staðar. Fínt að vera svona vel vöknuð, en er hrædd um að þetta verði erfiðara þegar líða tekur á vikuna, sérstaklega ef ég verð ekki dugleg að fara snemma að sofa.
Ég skef svo bílinn í fjórða sinn um níu leytið er ég fer í bæinn og hitti sjúkraþjálfann aftur. En mér er alveg sama ég vil heldur snjóinn en myrkrið.
Later

Ummæli
Ég.er.farin.að.fara.3.morgna.í.viku
í.leikfimi.kl6:30.Þetta.er.nú.
ekkert.verra.að.vera.í.ferska.
loftinu.úti.að.labba.Kv.Helga.