Búin að vera að síðan kl. 8 í morgun að stússast fyrir afmælið hennar KBB á laugardaginn. Þreif fyrir hádegi, verslaði svo allt sem vantaði í bakstur og veitingar og svo ég búin að standa í eldhúsinu frá kl. 14 að baka. Svo á morgun set ég á þetta allt saman og geymi í kuldanum inni í þvottahúsi yfir nótt.
Meira vesenið að kaupa inn fyrir svona afmæli. Fór í Bónus og Krónuna hérna í bænum og fékk ekki allt sem mig vantaði. Brunaði því í Hagkaup í Spönginni til að ná í rest en fékk ekki allt og endaði því hjá tengdó og fékk það sem á vantaði. Gott að eiga góða að! Ég var alvarlega farin að velta fyrir mér hvort maður þyrfti virkilega að panta á netinu frá útlandinu til að klára sig á svona veisluhöldum. Allir orðnir svo ódýrir og eiga bara það sem selst nógu hratt að ekki er hægt að fá nema stundum sumar vörur.
Nú er bara að láta dömuna hringja í vini og ættingja og bjóða fólki í afmælið, væri verra ef það gleymdist - kæmi mér samt ekki á óvart þó ég myndi afreka það.
Later

Ummæli