Allt brjál í Reykjavíkinni, gaman að fylgjast með. Fráfarandi meirihluti svoooo mikið hissa á þessu öllu saman, skilur bara ekki svona svik. Skrýtið því þeir gerðu nákvæmlega það sama fyrir 100 dögum síðan. Allir svo misskildir og torskildir að til vandræða horfir. What goes around, comes around, gott að hafa það í huga.
Það verður gaman að sjá hvort skipt verður um meirihluta fljótlega aftur, pólitíkin er aldrei leiðinleg greinilega. Alla vega kunna borgarfulltrúar að halda spennunni og fjölmiðlar eru alveg að fara á límingunum það er svo gaman hjá þeim núna.
Skil þetta ekki

Ummæli
En þetta var hörkuspennandi í gær. En ein spurning. Hvað ætli þetta rugl alltsaman kosti borgarbúa. Núna er þetta þriðji meirihlutinn sem er myndaður á þessu kjörtímabili.
Ég missti alveg af fjörinu í fréttunum, sjónvarpið var í rugli hjá mér og ég sat hérna inni í herbergi við tölvuna mína og horfði á Ísland í dag af netinu, og skemmti mér alveg prýðilega.