Merkilegt hvað ráðamenn þjóðarinnar komast upp með að vaða yfir Íslendinga á skítugum skónum. Þeir hreinlega ulla framan í okkur reglulega og komast alltaf upp með það. Er orðin langþreytt á gaurum eins og fjármálaráðherra sem var settur dómsmálaráðherra til að koma syni Davíðs að í gott embætti. Ætlar einhver að þræta fyrir að þetta hafi verið ákveðið fyrirfram? Þessi ágæti gaur hefur farið nett í taugarnar á mér síðan þarna um árið er hann gekk út af fundi í Keflavík af því að honum hentaði ekki fundarsniðið. Og hann hefur ekkert gert gáfulegt eftir það til að hækka í áliti aftur, þvert á móti. Týpískur sjálfstæður hrokagikkur.
Púst
Púst
Ummæli