Vorum að koma úr Skorradalnum - fórum þangað kl. 17 með Helenu og Davíð, Björgvini og Ernu og krökkunum þeirra. BH fékk þá flugu í höfuðið að fara þangað og leika sér á vatninu. Langaði á sjóskíði og nota góða veðrið. Við grilluðum þarna uppfrá svo fóru strákarnir með krakkana á bátinn, þau djöfluðust þar í nokkra tíma. Við stelpurnar chilluðum á meðan, spjölluðum saman og höfðum það kósí þar til þau voru búin að fá nóg. Svo skelltum við okkur í bæinn aftur um kl. 23. Það þarf ekkert að vera að flækja málin, bara láta vaða og gera hlutina, klukkutíma akstur er ekki mikið.
Kjartan minn nennir ekki útí tjald að sofa, systur hans til mikilla vonbrigða, alltaf svo samtaka þessi tvö. Hún kúrir þarna bara næstu nótt með vinkonum sínum. Þau sofnuðu ekki fyrr en um kl. 01 í gærnótt. Það er ekkert uppeldi á þessum börnum á sumrin hérna. Engin námskeið þetta sumar, bara látið ganga villt þetta árið. Yndislegt, bara farið að sofa þegar við erum búin að ljúka deginum, komin heim eða hvernig sem kvöldið er hjá okkur. Svo er bara sofið þar til fólkið vaknar. Hvað vill maður hafa þetta betra? Reyndar reynum við BH að koma okkur framúr á milli 9 og 10, en það er ekki alveg að ganga þegar við hættum ekki að glápa á Friends fyrr en 2 - 2:30.
Góða veðrið virðist bara vera á landinu bláa þessa dagana og planið er að njóta þess í tætlur. Á morgun er það bara garðurinn eitthvað og svo bara út á pall að lesa góða bók á brókinni. Fá smá lit á kroppinn ekki bara bringuna og hendur. Komin með sólarexem, alger hörmung. Sá að Karlotta virðist ætla að fá þannig líka. Fengum útbrot og tourett einkenni fyrir Vestan. Þar var svo mikil fluga að við vorum að geðbilast. Sátum á pallinum þar sleiktum sólina og lásum í bókum og kipptumst til eins og geðsjúklingar því flugurnar settust á okkur eins og mykjuskán. Kjartan minn flúði reyndar bara inn reglulega, þoldi ekki meir. Þess á milli stukku þau um eins og hérar í handahlaupum og arabastökkum og heljartökkum, stóðu á höndum og léku fullt af kúnstum. Þau tóku sig líka til einn daginn og hjálpuðu pabba sínum að standa á höndum. Fyrir þá sem ekki vita getur Baldvin ekkert slíkt. Leikfimikennarinn hans í gaggó ætlað að koma honum í handstöðu og þakkaði sínum sæla að BH hafi ekki nefbrotið hann, það munaði víst ekki miklu. BH er kannski nettruglaður dagsdaglega, en þegar drengnum er hvolft þá fer þetta litla sem þó er til staðar alveg í flækju. Svipað gerðist um árið í fallhlífarslysinu skemmtilega, allt í rugli.
Er að lesa Hvunndagshetjan eftir Auði Haraldsdóttur, mæli með henni fyrir allar konur. Konan er snillingur með pennann, kaldhæðinn og mátulega pirruð - allt eins og ég vil hafa það. Sagan fjallar um einstæða móður á sjöunda áratugnum og hvernig hún þarf að berjast við kerfið og almenningsálitið. Allt vinnur gegn henni, en hún þroskast og lærir að díla við alla vitleysingana. Bókin er barn síns tíma og það átti aldrei að endurútgefa hana, en það var gert og viti menn, ótrúlega margt í sögunni á enn við í dag, því miður. Konur standa bara ekki jafnfætis körlum á öllum sviðum árið 2007. Þegar hún var ung og langaði að mennta sig, langaði að verða læknir sagði mamma hennar að það tæki því ekki að byrja. Þegar hún væri hálfnuð myndi hún gifta sig og eiga börn, þá myndi hún hætta í námi og peningurinn væri út um gluggann. Þá datt henni í hug að læra kokkinn, en þeir tóku ekki við konum í námið, hún lúffaði en tók jafnframt fram að í dag myndi hún spyrja hvort þeir hrærðu í sósunni með tittlingnum, hvort ekki væri í lagi að hún notaði bara sleif? Sem betur fer er þetta liðinn tíð - konur mennta sig jafnt á við karlmenn. Lesið bókina hún er þess virði.
Nú fer ég og dett í nokkra Friends áður en ég fer að sofa, spurning um að eignast vini frekar?? Já eða rækta sambandið betur við þá sem ég á nú þegar?? Kannski ekki margir til í að spjalla eftir miðnætti í miðri viku...oh well læt þá bara þættina duga í bili.
Sunshine

Ummæli