Fara í aðalinnihald

Færslur

Handavinna

Halda því hér til haga að Skjólan er búin og ég er komin vel áleiðis með peysuna sem ég hef verið með á áætlun lengi. Mér var bent á að ekki mætti birta myndir af verkefnum án þess að sýna þau einnig fullkláruð. Svo ég fer að sjálfsögðu eftir því og hér er skjólan fína tilbúin. Við KBB ákváðum áðan að hún skyldi notuð, hún ætlar að nota hana líka. Var að spá í að gefa hana bara. Hún er ekki eins og ég vil hafa hana. Veit ekki hvort ég var að prjóna of fast, en hún er of lítil finnst mér. Er svona thight yfir axlirnar og kraginn sjálfur mætti alveg vera aðeins lengri. Svo ég ætla að prjóna aðra svona við tækifæri og hafa hana stærri. Ég vildi hins vegar byrja á peysunni sem ég keypt allt í, í janúar s.l. Hún á að vera fljótprjónuð, því ég ætlaði mér tvær vikur til verksins í vetur. Ætlaði að taka hana með á skíðin. Þessi á að vera bara svona þröng innanundir peysa, líkt og flíspeysurnar eru. Hugsuð til að halda á mér hita á veturna þegar við erum úti að leika okkur. Hugsuð ...

Spítalalíf

Afi var sendur á spítala síðustu helgi og hefur verið þar síðan. Krabbameinið að fara illa með karlinn. Þrátt fyrir að vonast hafi verið til að ekki þyrfti að gera aðgerð kom í ljós að hún var nauðsynleg. Hann er allur að koma til og hefur það ágætt. Fær reyndar ekki frið fyrir afkomendum sínum, það er fólk hjá honum meira og minna öllum stundum. En hann er vanur látunum í okkur og við reynum að hemja okkur og hegða okkur vel svo við þreytum hann ekki um of. Amma fór á sama spítala á þriðjudaginn. Ég grínaðist með að Freyja hefði verið svo erfið að amma hafi endað á spítala. Hún vildi nú ekki samþykkja það. Amma hefur það ágætt, þreytt en ágæt. Búið að ná tökum á mæði og hjartsláttaflökti. Rannsóknir í morgun leiddu í ljós að ekkert sé að. Alla vega sjá þeir ekkert. Það er nú venjan á þessu heimili líka, aldrei neitt að okkur, alla vega finnst sjaldan nokkuð þó við vitum að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Hjá henni er meira og minna fólk líka, mamma þó einna mest. Situr hjá h...

Gáttaþefur

Hér búa þrír svoleiðis. Ég hef áður nefnt það að það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu rosalegur nebbinn er á hundum, og sennilega flestum dýrum kannski. Hundar nota nefið á sér meira ein augun til að skynja umhverfi og finna hluti. Oft hef ég séð þau þefa og þefa til að finna nammið sem datt á gólfið, það er beint fyrir framan þau en þau "sjá" það ekki fyrr en nebbinn hittir beint á það. Ég keypti mér fyrir nokkrum árum ægilega fína rauða tösku hjá Rakel Hafberg á Laugaveginum. Þegar ég var að skoða gripinn fína tjáði hún mér að taskan væri búin til úr hænsnaleðri. Ég hváði hissa og hún útskýrði að veskið væri saumað úr leðrinu sem flett er af hænsnafótum. Talandi um nýtni. Ég hélt fyrst að þetta væri frekar fiskiroð eða eitthvað slíkt. Taskan er falleg og hefur nýst mér afskaplega vel, skipti ekki oft um veski og hef notað þetta töluvert ásamt brúnu, litríku Desigual töskunni minni. Það er skemmst frá því að segja að er ég kom heim með rauðu töskuna fínu þá s...

Yfir hafið og heim...

Karlotta á leið í Keflavík í þessum skrifuðum orðum. Nítján hressir skátar úr Mosverjum og Ægisbúum fljúga til Kaupmannahafnar núna um klukkan átta og þaðan til Zurich í Sviss og trítla yfir til Lichtenstein. Þar eiga þau eftir að skemmta sér súper vel ásamt öðrum skátum. Hér eru þær þrjár saman vinkonurnar, Andrea, Diljá og Karlotta. Ég vek athygli á því að við mæðgur erum í alvöru svona hressar á morgnana. Ferskar og til í daginn. Það vantar Birtu á myndina, hún var ekki komin fyrr en allir voru sestir inn í rútu. Svo er hér þessi fína Hópmynd - allir nema Birta, smá misskilningur með tímann og mætingu. Vona að þau fái gott veður og ég veit að þau verða til fyrirmyndar þessar elskur. Það er búið að bíða eftir þessari ferð síðan í janúar, eða fyrr. Og þá var ekki einu sinni komið á hreint hvort þau færu eða ekki. Þetta er fínn undirbúningur fyrir Jamboree í Japan 2015 - það er heimsmót skáta - aaaaðeins fleira fólk sem kemur þangað. Later

Ein og yfirgefin

Karlotta undirbýr sig fyrir Lichtenstein ferðina sína... gengur bara fínt og allt komið í hús held ég sem á að fylgja henni yfir hafið. Þau eru mjög spennt krakkarnir. Það getur fátt komið í veg fyrir að þau eigi eftir að skapa ógleymanlegar minningar og skemmta sér konunglega. BH undirbýr sig andlega fyrir að fljúga yfir hafið ásamt Gumma granna. Þeir yfirgefa landið á sunnudaginn og BH kemur aftur á fimmtudaginn. Ég sá fram á rólegheit hjá okkur mæðginum og loðboltum í nokkra daga. Drengurinn ekki jafn spenntur greinilega. Kom heim af frjáls íþrótta æfingu áðan og sagði að strákarnir vildu fá hann með á mót á Akureyri - ætla að nota hann í boðhlaupinu. Hann er bara svona að mæta á meðan fimleikarnir eru í fríi. Ekki á drottningin mín eftir að vera ánægð með þessar fréttir - hún er ansi þreytt á að vera þekkt sem "systir hans Kjartans" í frjálsum og einnig í skólanum. Þannig að systkinin yfirgefa kotið á föstudaginn, annað heldur fyrr en hitt. Svo við hjónin eigum laug...

Drullutúr

Karlottu langaði að hitta vini sína á Úlfljótsvatni og dekurdýrið sem hún er fékk auðvitað skutl þangað seinnipartinn. Ég ætlaði bara að hlaupa þarna í kring með hundana og svona á meðan og kippa henni svo aftur með mér heim. BH ákvað að koma með og við ákváðum að hjóla, hann búinn að þefa uppi einhvern slóða fyrir okkur til að fara eftir. Í stuttu máli er þetta einn fáránlega skemmtilegasti hjólatúr sem við höfum nokkurn tíma farið. Og hafa þeir verið nokkrir. Í HELLIDEMBU með hunda í góðu stuði, grófan veg sem breyttist stundum í hálfgerða mýri með mjúku undirlagi og pollum á stærð við stöðuvatn, hjóluðum við á 20 - 30 km hraða. Ég fór nú ekki hraðar en um 20 km en BH var langt á undan mér allann tímann og beið reglulega til að vera viss um að ég hefði ekki drukknað einhvers staðar. Hann var heppinn að halda sér á hjólinu, kófsveittur í allt of mikið af fötum miðað við lætin. Venjulega er honum svo kalt  því hann þarf ekki að gera neitt nema sitja á hjólinum og stýra. Ég ...

Vefst tunga um hurðastaf...

Stundum festist eitthvað í hausnum á manni og er bara þar. Maður segir eða gerir sömu vitleysuna ítrekað þrátt fyrir að vera leiðréttur/hæddur í hvert sinn. Við hjónin eru dáldið sökkerar fyrir Canada Goose úlpum. Dauðlangar, en þær eru aaaaðeins dýrar svo það hefur ekki verið mikið um kaup á slíkum gæða flíkum inn á heimilið. Ég hins vegar er alveg búin að bíta það í mig, og segi án þess að taka eftir neinu, að mongoose úlpurnar séu toppurinn. Og ég tala alltaf um mongoose úlpur í stað Canada goose. BH gerir stólpagrín að mér í hvert einasta sinn - spyr hvort ég sé að fara að hjóla og talar um hjólaúlpurnar mínar og svona alls konar. Tekur mig alltaf smá tíma að fatta af hverju hann fer að tala um hjól þegar ég tala um úlpu :) BH var svo yndislegur að rífa línuskautana mína í sundur í vikunni og smyrja öll hjólin. Síðast þegar ég fór (í hellirigningu) snerust hjólin varla eftir síðustu rigningartúra. Nú er ég hætt að fara á skautana þegar rignir. Það fer verulega illa með þá. Það ...