Halda því hér til haga að Skjólan er búin og ég er komin vel áleiðis með peysuna sem ég hef verið með á áætlun lengi.
Mér var bent á að ekki mætti birta myndir af verkefnum án þess að sýna þau einnig fullkláruð. Svo ég fer að sjálfsögðu eftir því og hér er skjólan fína tilbúin.
Við KBB ákváðum áðan að hún skyldi notuð, hún ætlar að nota hana líka. Var að spá í að gefa hana bara. Hún er ekki eins og ég vil hafa hana. Veit ekki hvort ég var að prjóna of fast, en hún er of lítil finnst mér. Er svona thight yfir axlirnar og kraginn sjálfur mætti alveg vera aðeins lengri. Svo ég ætla að prjóna aðra svona við tækifæri og hafa hana stærri.
Ég vildi hins vegar byrja á peysunni sem ég keypt allt í, í janúar s.l. Hún á að vera fljótprjónuð, því ég ætlaði mér tvær vikur til verksins í vetur. Ætlaði að taka hana með á skíðin. Þessi á að vera bara svona þröng innanundir peysa, líkt og flíspeysurnar eru. Hugsuð til að halda á mér hita á veturna þegar við erum úti að leika okkur. Hugsuð á skíðin líka innanundir úlpuna.
Komin svona langt:
Skotgengur þó ég gefi mér aðeins lengri tíma en tvær vikur. Liggur svo sem ekkert á nema bara vegna þess að ég er með svo margar flíkur á bið. Næst verður það peysa fyrir BH, kominn tími á nýja lopapeysu fyrir hann. Og svo ætla ég að gera aðra fyrir mig, hún verður aðeins meiri en þessi, alla vega lengri og sennilega í dekkri lit. Verst að ég er ekki fljótari að prjóna því mig langar að klára fullt af flíkum :)
En þá er bara að vera duglegur að halda sér við efnið - þá kemur þetta smám saman!
Later

Ummæli