Fara í aðalinnihald

Rómó ?

Mér finnst þetta myndband dáldið skemmtilegt. Koddaslagur er dáldið skemmtilegur. Við BH förum ALDREI í koddaslag. Eða sko ekki ég alla vega... alla vega ekki við hann.

Þið vitið koddaslagur - sjáið þetta í bíómyndum. Parið svona að "slást" með koddunum og hlæja aðeins og það ríkir ákveðið jafnræði - eða svona næstum því alla vega. Voða rómó og svona kósí skemmtilegt.

EKKI hjá okkur. NEI. Baldvin tapar ekki - ekki heldur gamnirómókósý koddaslag. Bara ekki. Og hann tryggir það alveg - gulltryggir - í fyrsta höggi. Ég má þakka fyrir ef ég einu sinni veit að það er koddaslagur í gangi þegar hann hefst. Hans mottó er AIM TO KILL - Operation: kill the bitch. Í alvöru ég má þakka fyrir að halda tönnunum... þakka fyrir að vera ekki dauðrotuð.

Svo ég lærði hratt að ég fer ekki í koddaslag við svona loonie.

Ég færi frekar í koddaslag á sjómannadaginn út á svona drumbi yfir höfninni við fullvaxinn alvöru íslenskan sjómann - og ég myndi hafa betur... svo góð er ég orðin.

Mér var boðið í koddaslag fyrir ekki svo löngu... sennilega komin ár síðan en ekki mánuðir... ég íhugaði það alvarlega því ég er með svona heilsukodda og þeir eru harðir (mýkjast er maður liggur á þeim) en hans er alveg mjúkur. Þetta getur ekki klikkað. En ég ákvað að sleppa því - kom í ljós að hann ætlaði að nota minn kodda... en ekki hvað - AIM TO KILL.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...