Þeir klikkuðu ekki - skemmti mér konunglega á tónleikum þeirra í kvöld (seinnipartinn). Smá stress að koma sér á staðinn. Lögðum aaaðeins of seint af stað og komum ásamt helmingnum af tónleikargestum klassískum 5 mínútum of seint. Frekar pirrandi... en endemis umferð maður - sæll, eigum við að ræða hvað ég gleymi þessu alltaf. Svo gott að búa hérna í Mos - ekki þessi læti. Bara bruna heim á vinstri akrein og dæmið dautt. En tónleikarnir byrjuðu ekki fyrr en 17:15 - helst þá vegna þess að það vantaði helminginn af gestum í salinn kl. 17:00.
Það voru sautján manns á sviðinu allan tímann - og svo tveir til er Jóhanna Guðrún og Eiríkur Hauks stigu á stokk. Þessir menn eru of góðir - textarnir þeirra eru æðislegir. Og fyrir þá sem hafa lesið eitthvað hérna áður vita að ég er ekki beint textakonan þegar kemur að tónlist. En fyrir þessa herramenn legg ég það á mig að hlusta.
Grínið á heimilinu er að í laginu Mamma þarf að djamma þá syng ég alltaf með. Það eina sem ég kann er "úhúú" og "mhmm" á milli setninga - en ég er líka rosalega góð í því að syngja það með mikilli innlifun.
Á miðjum tónleikum var lagið saddur sungið. Og í miðju lagi var ég nánast við það að kafna úr hlátri. Þetta var of líkt því þegar við erum í mat hjá tengdó stundum eða hjá ömmu Betu. Sæææll hvað er hægt að troða í sig og endalaust verið að troða í mann meiri mat. Svo verð ég að viðurkenna að það er ekki of langt síðan að ég lá svo illa afvelta eftir ferð á brikkuna í nóvember. Svo illa var ég haldin að ég man að ég lá um kvöldið (borðaði um miðjan dag) og hét því að borða ekkert fyrr en á miðju næsta ári. Hvað er að manni eiginlega ?
Tónleikarnir byrjuðu á laginu Rjúpur. Ef (þegar) ég fer á rjúpu einhvern tímann þá ætla ég að hafa þetta í eyrunum allan tímann. Á meðan ég þramma um heiðar þá á ég eftir að hugsa um hverslags "hetja" ég er að ná að skjóta eina eða tvær seinfærar rjúpur sem fljúga ekki hærra en einn og hálfan metra upp í loftið. Sennilega er meira varið í að grobba sig af göngutúrnum en skotfærninni ;)
Það er klárt mál að á Þorláksmessu - alla vega allan aðfangadag - mun lagið Hvað fæ ég fallegt frá þér hljóma hér. Svo erfitt að bíða sko... stundum er það reyndar ekkert erfitt. T.d. núna - Þegar ég sagði BH að þetta myndi hljóma svona til að hinta aðeins þá sagði hann bara að ég væri búin að fá mína jólagjöf. ENDEMIS það er rétt... og mikið svakalega er kanada gæsin að standa sig vel þessa dagana. Svo ég þarf ekkert að bíða - ég er búin að fá eitthvað fallegt :)
Ég verð bara að segja eins og Baggalútur, Það koma vonandi jól og ætla að gera mitt besta til að þau verði æði eins og segir í öðrum texta frá þeim.
Kæru Baggalútsmenn - ég þakka kærlega fyrir góða skemmtun og geri ráð fyrir að sjá ykkur aftur að ári... ef ekki fyrr :)
Later

Ummæli