Það er allt í drasli hérna ennþá - herbergið er svo gott sem ready. Þarf að koma manninum þarna inn svo hann setji sitt ofan í skúffur... mitt er meira og minna komið á sinn stað og allar bækur í hillurnar. Þ.e. þær sem ekki verða gefnar á bókasafnið. Allt í einu ætla allir að fara að lesa Stephen King og Alastair McClean (er það skrifað svona ? nenni ekki að gá)
Er búin að fara í gegnum hitt og þetta í möppum og pappírum og myndum hrikalega gaman. Hlakka til að vinna með þetta allt. Barnastúss, allskonar sem ég hef skrifað eða haldið til haga - myndir til að koma í albúm... úr öllum áttum reyndar, en það er allt í góðu. Þetta verður osom - er búin að ætla að gera þetta leeeengi og ég vona að ég láti verða af þessu núna.
Dóttir mín kom að mér í pappírshrúgu í gær. Var að fara í gegnum stílabækur og möppur.
LBK: Kæra dóttir, ef þið farið í gegnum lífið hérna í þessu öllu saman þá verður þú að trúa því að við faðir þinn elskum þig mikið, jafnmikið og bróður þinn. En þú verður að muna að hann var fyrsta barn.
Það kom svipur á drottninguna og ég gat séð að hún mun aldrei trúa mér.
LBK: sjáðu hér er mappa frá þér... snuð og svona kerling sem var klipið í fötin hennar til að hafa leikfang á ferðalögum.
Það verður að viðurkennast að mappan var heldur rýr en þó voru nokkur kort og pappírar í henni. Ég varð frekar skömmustuleg þegar hún spurði um möppu bróður síns og ég benti á heilan tímaritakassa með stútfullan af dóti og möppum. Það kom aftur svipur.
LBK: Hey hér er önnur mappa (svona teygjumöppur) ó nei ehe þetta eru hundamál.
KBB: Frábært Kjartan og hundarnir... já ég veit hvað skiptir ykkur mestu máli.
LBK: Nei í alvöru... þú ert uppáhaldsdóttir okkar.
Svo glotti hún bara - ég á eftir að græja svo flott fyrir þau og það kemur ekki til með að halla á drottninguna okkar.
Ég get glatt hana samt og sagt með góðri samvisku að ég hafi gert mitt besta og að ég á eftir að fara í gegnum allskonar dagbækur (svona bara venjulegar, róleg ég nenni ekki að skrifa reglulegar dagbækur). Þar hef ég punktað hjá mér alls konar skemmtileg tilsvör og atburði. Á eftir að koma því í stílabækur. Og svo finn ég örugglega alls konar skemmtilegt frá þeim báðum þegar ég leggst í þetta. Þetta verður gaman - jafngaman og að græja fermingaralbúmin þeirra - klára hans og byrja á hennar :)
Það verður handleggur að koma því í burtu sem ég ætla ekki að eiga eða hafa hér inni. Nágrannarnir komu og tóku skenkinn áðan, svo hann er ekki í stofunni lengur. Hillurnar eru hins vegar allar í holinu ennþá og skapar smá óreiðuástand. Þær fara á hádegi á morgun. Náði ekki að selja neitt af þessu, samt var spurt um allt... og fólk svo klikkað - spyr og býður í draslið en lætur svo ekkert heyra frá sér meir. En það er alvanalegt og ég átti ekki von á neinu öðru, nenni hins vegar ekki að hafa þetta hér lengur eða koma þessu út í bílskúr eða í eitthvað pláss... þetta verður allt gefið og ég ætla ekki að hugsa um það meir.
Svo að þrátt fyrir að hafa verið úber dugleg og allt að smella þá er allt í drasli hér ennþá - en það er allt í góðu ég er að byrja að jólaskreyta samt. Hrúga ljósum í gluggana í eldhúsinu og stofunni og þrífa eldhúsið og stofuna líka. Ég sé alveg móður mína hrista höfuðið núna og svona puh-a yfir dóttur sinni. En hey - þetta er mitt drasl og mitt jólajóla og ég er bara ekkert allt of stressuð yfir þessu - hef aldrei verið og hef fulla trú á að það verði orðið notalegt hérna annað kvöld með þessu áframhaldi :)
Later

Ummæli