Fara í aðalinnihald

Lífið er núna... lifðu því

Hér má sjá viðtal við eina fallegustu konu sem ég hef á ævinni kynnst. Hún er einstök, algjör nagli. Alltaf jákvæð, alltaf dugleg og alltaf til í einhverja vitleysu.

Þrátt fyrir jákvæðni og dugnað þá er lífið erfitt stundum. Það er ekki auðvelt að vera orkubolti og vera sleginn svona niður. Það getur verið erfitt að standa í lappirnar og brosa framan í heiminn endalaust þegar líkaminn hlýðir ekki. Stundum þarf maður bara að fá að vera lítill, dapur, reiður, sár og finnast lífið ósanngjarnt - en Rósa mín stendur alltaf upp aftur og það sér enginn að það ami neitt að hjá henni.

Hún er frábær fyrirmynd fyrir alla sem kljást við einhverja sjúkdóma eða einhverja erfiðleika í lífinu - alltaf virk, eins virk og hægt er í hvert sinn, reynir alltaf eins og hún mögulega getur... jafnvel aðeins meira.

Það er fátt eins sárt og að sjá þegar svona kona er stoppuð af - langar að framkvæma eitthvað... en er ráðlagt að sleppa því. Hennar var sárt saknað (og Orra líka... smá) er við gengum Laugaveginn t.d. En málið er að njóta alls þess sem þó er hægt að gera og það er ekki svo lítið. Höfum skemmt okkur fáránlega vel í öllu sem okkur dettur í hug.

Hún er ein af hetjunum sem ég þekki - þær eru nokkrar. Konur eru dugnaðarforkar þegar á reynir - alla vega þær konur sem ég þekki og umgengst.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...