Fara í aðalinnihald

Dr. mamma

Ööööö nei, ekki á þessu heimili. Hér getur móðirin ekki hugsað þegar einhver slasar sig og vill bara drífa viðkomandi til læknis eða hjúkku. Ég meika ekki að búa um sár eða eitthvað verra... gæti ekki tekið úr sauma eða sprautað neinn, ekki einu sinni sjálfa mig. Og það hefur reynt á það. Fyrir eina af aðgerðunum sem ég hef farið í. Þá var mér boðið að koma kl. 20 aftur í sprautu til að fá blóðþynningarlyf (standard fyrir skurðaðgerðir) eða fá bara með mér heim sprautu og efni. Sprauta mig svo bara sjálf í vöðva. "Sjáumst bara kl. 20" ég var ekkert að ræða að sprauta mig sjálf.

Anyways... sonurinn duglegur að reyna á þolrif móður sinnar, ræðum ekki hvernig hann fer með föður sinn. Hringdi í fyrradag og sagðist vera á leið á slysó - hafði slasað sig á æfingu. Og hann er hættur í fimleikum. Jú hann sagðist hafa tekið stykki úr fingrinum á sér - og ég spurði á móti "ert þú ekki að æfa spretthlaup?"

Þeir voru að leika sér eftir æfingu og hann klemmdi sig á einhverju járndrasli... rörum eitthvað. Svo skýr í útskýringum barnið.

Í dag má taka umbúðirnar og gerði hann það hérna áðan. Grettan er enn á andlitinu á mér... samt sá hann um að græja þetta í burtu. Blóð inn í miðjar umbúðir og þetta var mjög þykkt vafið. Svo var allt fast við sárið eins og lög gera ráð fyrir. En þetta hafðist allt og var ekki of slæmt... þ.e. ekki of slæmt að ná þessu af.

En það var engu logið, það klárlega vantar stykki í litla fingur vinstri handar.





Læknirinn sagði að sennilega væri fingrafarið farið... en að öðru leyti yrði þetta fínt og myndi bara gróa - halda þessu hreinu og passa að ekki komi sýking í sárið.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...