Fara í aðalinnihald

Double standards

Það er furðulegt hvað það er ríkt í okkur að tala stelpur og konur niður - segja þeim að vera sætar og fínar og dömur. En boys will be boys, það getur enginn stoppað.

Á Baggalút tónleikunum klofaði BH yfir bekkinn (efsta bekk fyrir neðan miðju) og þá þurfti enginn að standa upp fyrir honum. Við sátum fyrir miðju og hann kom með þeim síðustu inn. Hentugt. Í hléi er við skoppuðum á milli sætanna til að komast fram sagði dóttir mín heldur önug að hún væri löngu komin fram ef hún þyrfti ekki að vera DAMA. Þá hefði hún klofað yfir bekkinn líka - gott að hafa langar lappir. Ég klofaði ekki yfir - hefði setið föst á sætisbakinu því ég hef of stuttar lappir í þetta.

Ég tilkynnti henni að hún þyrfti ekkert að vera dama fyrir mig... ég hefði aldrei verið dama og myndi aldrei ná þeim standard anyways !

Svo verður fólk eldra og þetta heldur áfram. Karlar eru ákveðnir, konur eru frekjur. Karlar verða virðulegir með aldrinum, konur verða gamlar og ógjaldgengar. Karlar gera skemmtilega og krefjandi hluti, konur brosa og fylgjast með... eða elda eða prjóna eða... já það allt. Sem er allt í góðu... með þessu skemmtilega.

Fór að velta þessu fyrir mér í framhaldi af þessu myndbandi sem ég var að horfa á. Fannst aðeins of mikið til í þessu - því miður.

En ég er sannfærð um að þetta hljóti að breytast hægt og rólega. Þrátt fyrir öll tröllin sem rísa á afturfæturna í hvert sinn sem "öfgafemínistar" svo mikið sem hvísla einhverju í umræðuna. Helvítis frekjurnar.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...