Fara í aðalinnihald

Mega húsmóðir

Þá er sultugerðin búin þetta árið - restin af rabarabaranum er enn hérna úti og í lagi, fer með hann bara til Betu ömmu og Lilju ömmu á morgun. Við mamma suðum 4 kg. af rabarbara í sultu og 3 kg. af rifsi í hlaup, það var bara fínn skammtur fyrir okkur í ár, alveg mátulegt. Átti m.a.s. afgangs krukkur. Nú er bara slátrið eftir í september og þá er ég búin að húsmæðrast þetta árið. Við mæðgurnar, allar þrjár, tökum slátur á hverju ári því Svandís fær þetta allt saman úr r0lluskjátunum sínum. Engin ástæða að fleygja þessu öllu saman, veit að fólk gerir það nú samt. Hirðir bara kjötið. Ég er nú svo klikkuð að ég hirði frekar slátrið og allt sem því fylgir, langar ekkert í kjötið - kannski bara lærin. En ég fer bara í mat til mömmu af og til yfir árið og fæ þá yfirleitt indælis lambalæri í matinn.

KEB fór á fyrstu æfinguna hjá Ármanni í dag er með fínum strákum í hóp og hann er svona líka spriklandi ánægður eftir tímann. Finnst ofsalega gaman, og hann sem var að eyða miklum tíma í áhyggjur af þessu öllu saman og vildi helst ekki fara. Ég átti von á þessu, að eftir fyrsta tímann myndi hann ekki vilja koma heim aftur. Frekar leiðinlegt að hann missir af næstu tveimur tímum því þeir eru á föstudögum og laugardögum. Hann er að fara með pabba sínum og fleirum í feðgaflokk í Vatnaskógi næstu helgi. Ég sagði honum að ég væri búin að borga æfingar fram til jóla, hann vildi þá bara vita hvort hann mætti ekki örugglega fara samt líka eftir áramót. Of course you can.
KBB byrjaði líka í dag í fimleikum - fengum póst um það eftir hádegi í dag að hennar hópur ætti að byrja í dag. Þannig að hún mætti ein í sínum hóp, dró Mímí með sér svo þær voru tvær. En við komumst að því að þær verða ekki saman í hóp þetta árið - en það verður í góðu lagi.

Sat hérna framyfir hádegi að fara yfir BA uppkast fyrir Sonju vinkonu - hún er að skrifa um heilsufar barna á lýðveldistímanum og fyrr. Það er dálítil vinna að fara yfir svona ritgerð, en líka skemmtilegt því maður lærir bara eitthvað nýtt líka - áhugaverð efni. Fór líka yfir ritgerð í vetur þegar Sigrún skilaði og það tók líka mikinn tíma. En þegar efnið er skemmtilegt þá er vinnan léttari :) Ég kemst ekki hjá því að spá í allar ritgerðirnar sem kennararnir fara yfir á hverju ári - þær eru reyndar styttri en töluvert fleiri, t.d. þegar um 60 nemendur og fleiri jafnvel sitja einn áfanga. Púff öfunda þá ekki - viss um að ég myndi bara leggja höndina á bunkann og áætla 8 á línuna. En ég þarf svo sem ekki að hafa áhyggjur af því - er bara farin að svitna yfir að þurfa að skrifa svona meistarastykki næsta sumar. Er enn að velta fyrir mér efni - samt svona komin með ákveðin svið sem ég er að velta fyrir mér.

Í Leirutanga 1 er stelpuhelgi framundan - við erum svona að leggja hausinn í bleyti og fá hugmyndir um hvernig best sé að nýta hana. Ætlum sennilega að fá Helenu, Aron Frosta og Lilju í mat á föstudaginn, glápa svo á stelpumynd sem hentar fyrir 8-55 ára - nóg af þeim í boði, éta sælgæti og popp. Annað er ekki ákveðið - kannski skellum við okkur í bíó bara. Svo er hefð fyrir því þegar við erum bara tvær að pæjast að KBB rænir rúminu hans BH og við kúrum saman mæðgurnar og förum snemma og seint að sofa - ég snemma og hún seint, þ.e. um kl. 22:00.

Farin í rúmið - enn að lesa Jörðin og Öxin, gengur hægt þessa dagana. Erfitt að vakna snemma en er farið að verða þolanlegt. Við KBB rúllum framúr þegar KEB er búinn að klæða sig, bursta tennur, búa um rúmið, borða og taka úr uppþvottavélinni, takk fyrir það - hmm, ætti mamman ekki að koma sér framúr fyrst - veitiggi.

Allt í lagi bleeeeeess

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sé það að ég er engin húsmóðir geri hvorki slátur ... (eða jú maðurinn minn gerði slátur í fyrra ) né Sultu svo kann ég ekki að baka .. en er að læra það.
kv Fríðan
Lóa Björk sagði…
Þetta er allt gert af illri "nauðsyn" Svandís fær innmatinn allann úr rollunum sínum og ég er pínd með í þetta, og hef gaman að. Og svo vex bæði rabarbari og rifs í garðinum og mér finnst alveg ómögulegt að láta þetta eyðileggjast. Og þú kannt alveg að baka - eiginlega kenndir mér hí hí. Er enn að nota skúffuköku-uppskriftina sem við bökuðum eftir um 12 ára aldurinn heima hjá þér :o)
Lóa
Nafnlaus sagði…
Voðalega mannst þú allt vel stelpa...uppskriftin sem ég kenndi þér.
Lóa Björk sagði…
Jamms er enn að nota hana, við mikla lukku heimilisfólksins hérna.
:o)
Nafnlaus sagði…
Já flott ....ég nota hana stundum hún vekur alltaf lukku.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...