Neophobia er næstum eina fælnin sem telst vera eðlilegur hluti af þroskaferli manna og er talið að mannkynið hafi þróast með þennan eiginleika til varnar því að börn borði hættulegan mat eins og eitruð ber eða sveppi.
Neophobia gerir vart við sig þegar börn ná tveggja til þriggja ára aldri þegar þau eru orðin mjög hreyfanleg og geta horfið foreldrunum úr augsýn á augabragði og óttinn við að borða nýja hluti getur í raun bjargað lífi þeirra. Mbl. í dag.
Þar hafið þið það - ég var ekki bara matvönd - ég var bara að passa að éta ekki einhvern óþverra sem myndi hugsanlega skaða mig. Svona eins og lifur, lauk, gúrku og fleiri framandi tegundir af mat. Ég lít enn á mig sem matvanda manneskju en hef samt tekið eftir því að ég er ekki sú eina og alls ekki sú versta í þessum málum. Hef heilmikið tekið mig á í þessum málum á fullorðinsaldri - er svona að þroskast í rólegheitum. T.d. borða ég rauðlauk núna, ætla ekki að ræða þetta með lifrina, það segir sig sjálft.
ojjj

Ummæli