gefur gull í mund. Dagurinn byrjaði snemma, ræs klukkan 5:00, fór reyndar á fætur rétt fyrir 6:00. Keyrði BH út á völl, hann á leið til Belgíu og kemur á föstudaginn. Vorum ekkert smá pirruð hjónin að fatta ekki fyrr en rúmlega 2:00 í nótt að hann hefði vel getað tekið hádegisflugið til Köben í þetta skiptið. Fundurinn er ekki fyrr en á morgun og honum lá ekkert á þarna út endilega fyrir kvöldið. Og þá hefðum við getað soooofið lengur. En nú er ég vöknuð og ætla bara að reyna að vaka og fara snemma að sofa í kvöld. Nota daginn bara, fara í vinnuna og drífa mig svo heim eftir að hafa borgað laun og reikninga - endemis reikningar.
Ætti ég að pirra mig á að fá ekkert endurgreitt frá skattinum af því við erum svo mega rík hjónin? Niii nenni því ekki of fallegur dagur þarna úti (smá kalt samt). Læt nægja að segja að ég finn ekki fyrir því að vera ríkari í ár en árið 2002 áður en fasteignaverð rauk upp úr öllu valdi. Er að borga ofurvexti og verðtryggingu eins og allir aðrir, en nýt þess að hafa keypt ódýrar en margir aðrir og því fæ ég ekki endurgreitt í ágúst, þó ég hefði svo not fyrir það. Það er svo skrýtið hvað við hjónin erum ekki að finna fyrir því hvað við erum heppin að vera svona "rík" eins og Pétur Blöndal vill meina. Fer ekki með fasteignamatið af húsinu og sýni afgreiðslufólkinu í Bónus hvað ég er "rík" og fæ mjólk og brauð út á það. En björtu hliðarnar eru þær að ég verð fyrr búin að borga eignina en margir aðrir - engin 40 ára 100% lán á þessum bæ, því þau voru ekki í boði á sínum tíma. Og greiðslubyrðin á þessum bæ er sú sama og hjá flestum öðrum held ég. Annars höfum við það svo gott að við höfum ekki rétt til þess að kvarta neitt - þannig að ég er svo sem ekki að væla, finnst þetta samt fúlt því það er alltaf gaman að fá pening í vasann. Það myndi svo toppa vitleysuna að þegar við verðum komin í góðann gír hérna og flest lán uppgreidd að þá rjúki eignaskattar aftur upp úr öllu valdi - það væri alveg súper.
Ekkert væl - fara að vinna fyrir laununum sínum - þ.e. að borga þau út hí hí - og borga reikningana svo maður sé með allt á pari í vinnu og heima. Eigið góðann dag í sólinni.
Mrs. Sunshine

Ummæli