Jú jú búnir að vera rosa duglegir síðustu tvo daga, úti að veiða allann daginn. Nú var KEB hér í tölvunni í morgun, fór yfir til Péturs - kom hingað núna og vildi fá að vera í tölvunni með Pétri og Agnari. Okei, lét eftir - komst að því að Harpa hafi verið að biðja þá um að hætta hinum megin í tölvunni þar. Þannig að þessir kjánar hlaupa bara á milli húsa í tölvur. Þegar þeim er sagt að hætta á einum stað þá bara farið í næsta hús. Það er eins gott að vera í sambandi við mæður vina barna sinna og tala saman. Margoft rekið mig á það. Er svo heppin að þessar mæður eru flestar á sömu blaðsíðu og ég. Þannig að nú sitja þessar elskur inni í eldhúsi og ætla að spila borðspilið Lord of the Ring, í stað tölvuleikjarins.
Gauramamma
Gauramamma
Ummæli