Er að prjóna lopapeysu, byrja á peysu fyrir KBB og ætla svo að gera fyrir KEB. Spennandi að sjá hvort ég klára þetta nokkurn tímann. Er að prjóna úr létt-lopa eftir hespulopa uppskrift. Ekki nóg með það heldur er ég að gera barna peysu eftir fullorðins uppskrift. Peysan sem ég fer eftir er lokuð en ég ætla að gera rennda. Var hægt að flækja málið meira?? Eins gott að hafa mömmu og Lilju og svona prjóna konur mér til halds og trausts. Er að verða búin með aðra ermina, byrjaði á henni til að þreifa mig áfram. Er með þrjár uppskriftir til að styðjast við. Ef ég kemst í gegnum þetta og klára peysuna þá er ég útskrifuð úr lopapeysuprjóninu.
Er að reyna að vera dugleg að lesa, hefur gengið ágætlega í sumar. Búin að lesa nokkrar bækur misgáfulegar. Dett inn í þessa Dætur lífsins seríu, það er svona krapp en ágætt aflestrar. Finnst voða gott að sitja bara og lesa. Hef notað góða veðrið í sumar og legið út á palli seinnipartinn og lesið bara.
En vegna veðurs hef ég lítið sem ekkert föndrað í sumar. Kemst bara ekki inn þegar sólin skín svona skært og hitinn svona mikill. Nú á að bæta úr því og byrja aftur, alltaf með albúm í gangi sem ég verð að fara að klára. Á svo mikið fínerí til að nota að ég nenni varla að taka það fram fyrir eitt kvöld. Þannig að nú ætla ég að þrífa og dreifa svo úr mér - en sko er að fara í skírn á fimmtudaginn, stússast aðeins fyrir það og svo er bara vikuferð á Stykkishólm á föstudaginn. Aldrei tími til að byrja almennilega. Þannig að nú er bara ekkert múður, dreifa bara úr sér í draslinu og ganga svo bara aftur frá. Tekur aðeins meiri tíma en það verður að hafa það.
Þannig að í fríinu hef ég haft of mikið af verkefnum og ekki komist yfir þau öll, garðurinn gengur fyrir. Og nú fara skólarnir að byrja og ljúfa lífinu að ljúka, smá kvíði fyrir haustinu en mikið verður gaman að takast á við þetta allt saman enn og aftur.
Fylgdist aðeins með Formúlunni um helgina, allt brjálað hjá McLaren. Hamilton búinn að brillera á fyrsta árinu sínu í keppni og heimsmeistarinn Alonso eitthvað farinn að titra. Las svo á mbl.is að liðið hafi sagt Alonso að hann mætti hypja sig á næsta tímabili ef hann vilji, þeir nenna honum ekki lengur. Smá skap í þessum köppum, eins gott að þeir fari ekki að gera eins og fótboltahetjurnar og ganga í skrokk á hver öðrum. Það væri fyndið, þá myndu bílarnir keyra á eftir hver öðrum inn í pittinn eða jafnvel bara út á götu og reyna að klessa á hina sem væru að pirra þá. Kannski ekki, væri fyndið samt. McLaren ekki ánægðir að missa stigin sem þeir áttu að fá í þessari keppni, sennilega brjálaðir, skiptir smá máli í liðakeppninni. Eina sem Alonso græddi á þessari töf var að nú halda flestir með Hamilton, líka þeir sem ekki gerðu það áður.
Fer í að rífa upp myndir og síður til að scrappa smávegis - gerist ekkert nema byrja.

Ummæli