Fara í aðalinnihald

Bátalið og Vatnakettir

Komin heim úr Skorradalnum - Skemmtum okkur svo vel þarna uppfrá. Yndislegt veður á sunnudaginn, hefði mátt vera betra á brennunni á laugardagskvöldið. En það var hlýtt og engin rigning og allir í góðu skapi. Við krakkarnir fórum reyndar bara snemma tilbaka samt og höfðum það huggulegt í bústaðnum. Á sunnudeginum var farið út á bátinn og við vorum þar bara allann daginn. Það var rosa umferð á vatninu, allir á bátum eða vatnaköttum að draga fólk á blöðrum eða skíðum. Krakkarnir komnir með þurrgalla og svamla bara í vatninu eins og í risastórri sundlaug. Gallinn hans KEB lekur reyndar, þurfum að bæta hann eða fá nýjann. Fékk galla frá Valla sem Ása og Steinar eru vaxinn uppúr. Á sunnudagskvöldinu var skroppið í næsta bústað til Didda og Sessu þar sem krakkarnir héldu uppi fjörinu með látbragsleik og leikritum. Þokkalega sem var hlegið þetta kvöld.

Vinna og vinna - þriðjudagur til þrautar, er að klára virðisaukann hérna, ekki það skemmtilegasta sem ég geri. Gekk heldur ekki eins smurt og venjulega, en mamma reddaði því fyrir mig í gærkvöldi, TOK eitthvað að hrekkja mig. Nú þarf ég að fara í það mál að kaupa skírnargjöf. Það á að skíra litla ljónið á fimmtudaginn, hlakka til að heyra hvaða nafn krílið fær.

Krakkarnir mínir orðnir svo stórir að þau eru bara skilin eftir heima á meðan ég fer í bæinn að vinna og útrétta. Mjög þægilegt, þau eru svo dugleg.

Banaslys í umferðinni eru "bara" sex það sem af er ári, miðað við um 20 í fyrra á sama tíma. Til hamingju með það ökumenn. Vona að talan haldist þessi út árið, það er víst varla raunhæft, en það er í lagi að vona og reyna að stuðla að því að keyra sjálfur eins og manneskja og vona að allir hinir geri það líka. Ekki eins og aumingjans gaurinn sem borgaði með lífinu að stinga lögguna af þarna fyrir austan um helgina. Það er frekar aumt að týna lífinu fyrir svona fíflaskap. Verið þolinmóð í umferðinni og keyrið á löglegum hraða. (ekki mín sterka hlið, en ég reyni samt og fer mikið fram)

O&O

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...