"Þú þarft bara að fara að láta bólusetja mig eða eitthvað" KBB var mikið niðri fyrir þegar hún kom heim úr skólanum. "Nú gegn hverju þarftu bólusetningu?" Kennurunum mínum, þær eru bara alveg..." Hún átti bara ekki orð. "Þær láta okkur safna pöddum, flugum, ormum og KÖNGULÓM og koma við þær og skoða með stækkunargleri" -"Já já er það ekki bara eins og þú hefur gert undanfarin ár úti í garði?" Að undanskildu stækkunarglerinu kannski. "Farðu nú ekki að apa vitleysuna upp eftir einhverjum stelpukjánum úr bekknum þínum - aldrei verið með vesen út af pöddum, ekki byrja núna." "Neih þetta var nú allt í lagi - alla vega flugurnar".
Það má kannski minnast á að garðurinn okkar og húsið er paradís köngulóanna - hingað koma þær í sumarfrí og hafa það rosa fínt. Lét reyndar eitra upp í þakkantinn í sumar og það virkaði fínt - miklu miklu minna af þeim í ár en undanfarið. Börnin mín ættu alla vega að vera alvön þessum kvikindum og þurfa ekki bólusetningu gegn þeim né kennurunum - sem hingað til hafa verið besta fólk.
Ace Ventura

Ummæli