Fara í aðalinnihald

Kanntu brauð að baka...

...Já það kann ég. Við Helena bökuðum FULLT af kanilsnúðum í dag, 2 bananabrauð og 2 Döðlubrauð. Baka kannski brauð aftur á morgun, bara til að hafa nóg með Vestur. Kanilsnúðarnir eru snilld - gerbakstur - klikkar ekki. Döðlubrauðið er to die for - og ég borða ekki döðlur. Bananabrauðið er náttlega ómissandi og við komum rúllandi heim eftir fríið.
Sóttum myndir í framköllun fyrir hádegið, hvað er langt síðan maður gerði það? Karlotta vildi vita í gær af hverju ég prentaði ekki bara myndirnar. Kjartan var með einnota myndavélar í Vatnaskógi, datt í vatnið með aðra þeirra alla vega og eru þær myndir skrautlegar með bleikum doppum hér og þar. Bara gaman fyrir hann að eiga þessar myndir seinna, ætla að setja þær fljótlega í albúm með honum þannig að hann geti skrifað við myndirnar nöfn á fólki og hvað þeir voru að gera. Á næsta ári verða þau bæði send með einnota myndavélar, gaman að eiga þessar minningar.

Alltaf fréttir um drukknanir í sundlaugum landsins upp á síðkastið. Ég er hætt að vera eins róleg að senda krakkana ein í sund. Farin að halda að ég þurfi að vakta þau eins og þegar þau voru lítil. Karlotta er átta ára og má því fara ein í laugina og hefur farið reglulega eftir að Lágafellslaugin opnaði. Það þarf greinilega að brýna vel fyrir henni að vera ekki að þvælast í djúpu lauginni. Það liggur við að ég vilji helst ekki leyfa henni að fara einni lengur á meðan þessar fréttir dynja á manni vikulega. Annars velti ég því stundum fyrir mér hvar foreldrar barnana eru. T.d. þegar litla krílið hérna í Lágafellslauginni var nær drukknað. Það kom fram í fréttinni að bróðir barnsins hefði verið að gæta þess. Ekki var tekið fram hve gamall hann var. Frétti það stuttu seinna að barnið var um 2 ára og bróðirinn fimm ára. Mamman hafði farið að synda á meðan þau voru saman í rennibrautinni að leika sér. Ef þetta er rétt þá finnst mér að mamman ætti að fara á foreldranámskeið. Það er eitthvað að manneskju sem heldur að fimm ára barn geti gætt 2 ára barns í sundlaug.

Héraðsstubbur

Ummæli

Nafnlaus sagði…
já þetta eru hræðilegar fréttir. Hulda Karen hefur einu sinni farið ein í sund og það var núna nýlega og ég var með hjartað í brókunum allan tímann. Held ég bíði bara aðeins með að lofa henni að fara ein aftur. Þið eruð nú engar smá fyrirmyndar húsmæður þú og Helena. Mátt senda mér uppskrift í meili af þessum snúðum. Ég var búin að fá hana einhverntímann hjá þér en ég finn hana ekki. Kv Helga.
Lóa Björk sagði…
Fann ekki mína heldur - notuðum Helenu Uppskrift - hún er líka gerdeigsuppskrift og alveg jafn góð :)Sendi þér hana við tækifæri

Lóa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...