Erum á leið í bæjarferð ég og krakkarnir - vantar smávegis og þarf að flækjast á milli búða. M.a. Ikea - ekki minn uppáhaldsstaður og sérstaklega ekki um helgar. Les svo í blöðunum að það er sko afmælisveisla og kaka kl. 13 - fátt sem ég nenni minna en svona troðningur. Ætla að vera farin þegar þetta byrjar allt saman :o/ En er heppin að hafa séð þetta áður en ég lagði af stað því síðustu helgi átti ég erindi í Hagkaup í Smáralind og þegar ég kem þar að ásamt BH komumst við að því að von er á hæsta manni í heimi fljótlega. Svo við þurftum að troðast þarna í gegnum hersinguna sem saman var komin til að heilsa uppá karlinn. Svo sá ég manninn er hann gekk í gegnum Hagkaup og framhjá snyrtivörudeildinni og VÁ hann er STÓR - yikes mar. Well farinn í bæinn og vona að ég verði komin heim um kl. 13. Það er töluvert skemmtilegra að eyða deginum úti í móa eða uppá fjalli með hunda hlaupandi í kringum mann (eða frá manni LoL). Við KEB ætlum svo í Salinn í Kópavogi kl. 17 á tónleika. Þar mæta tvei...