Fara í aðalinnihald

Eniga meniga

Fór í Office 1 áðan og meðal þess sem ég ætlaði að kaupa var gulur yfirstrikunarpenni. Ætti ekki að vera vandamál í svona verslun að finna einn slíkan. Og satt best að segja hélt ég að þeir yrðu þarna í röðum, nokkrar týpur og svona. En ég fann bara eina týpu í einum kassa innan um aðra liti í hillunni. Fannst þeir líta illa út, upplitaðir og óspennandi. Svo ég tók einn upp, opnaði hann og sá að hann var skrýtinn á litinn. Svona eiginlega dökk gulur... nánast út í orange. Svo ég ákvað að prófa kvikindið á blaðinu sem til þess hangir þarna hjá pennunum öllum.

Og eins og mig grunaði var yfirstrikunarpenninn uppþornaður og það kom lítið gult á blaðið sem ég reyndi að strika á. Eins var með næstu þrjá penna. Leitaði dálítið að annarri týpu, svona týpu sem kannski myndi koma eitthvað úr, væri ekki uppþornuð. Nei fann ekkert, nema jú það var svona penni í pakka ásamt öðru pennadóti sem mig vantar bara ekkert. Vildi því ekki kaupa þannig.

Prófaði fleiri penna úr vafasama kassanum og fann einn sem var á litinn eins og maður á að venjast, svona skærgulur. Prófaði hann og það virkaði fínt. Hugsaði með mér að ég nennti ekki að gera mál úr þessu og fara í fleiri verslanir. Ákvað að kaupa þennan bara.

Á kassanum sagði ég dömunni sem var að afgreiða að þessir pennar væru meira og minna uppþornaðir og ónýtir í hillunni. Svona svo hún vissi það og gæti fjarlægt þetta bara því þeir eru ónothæfir. En svarið sem ég fékk kom mér pínu á óvart... en samt ekki því ég hef fengið svona viðbrögð áður. Hún sagði "já þeir kosta bara 99 krónur". Ég horfði á hana kjaftstopp en hugsaði... "já ætli það sé ekki best ég fái þá þrjú stykki".

Hún meinti það svo innilega að þetta væri ruglverð og því í góðu lagi að kaupa þetta ónýta dót.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Æ veistu maður á bara ekki að versla í Office 1. yfirleitt er nú bara ekki til það sem mann vantar eða það er þá algjört drasl. Kv.Heiða.
Lóa Björk sagði…
Já það er greinilega mikið keyrt þarna á ódýrum vörum sem eru á mörkunum að vera í lagi :o/

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...