Fara í aðalinnihald

Ólík systkin

Okkur hefur verið tjáð alla daga síðan KBB fæddist að þau systkini væru ansi lík - já þau líkjast föður sínum töluvert. Tel mig eiga heilmikið í þeim - þau eru blönduð, það er mitt mat á þessum börnum mínum :o) En augnsvipurinn er sterkur og hann kemur frá föðurnum, hann gæti ekki svarið þau af sér - en hann hefur nú ekki verið að reyna það heldur!

En mér hefur nú ekki endilega fundist þau svo lík - stundum þegar maður sér gamlar myndir kannski. Ég þekki þau of vel, þau eru svart og hvítt. Nema bara bæði ljóshærð og bláeygð :o)

Áhugamálin ólík, persónuleikar þeirra mjög ólíkir, ólík í skapi, ólík á morgnana (annað vaknar, hitt ekki - svona í stíl við foreldrana). KBB hefur miklu meiri áhuga á öllu sem tengist dýrum en KEB. Hann hefur gaman að þeim en er ekki kannski einlægur áhugamaður. Leggur sig ekki endilega fram um að kunna og muna allar tegundir innan hundaflórunnar til dæmis. Myndi ekki gráta það að komast ekki á hestbak í hverri viku o.s.frv.

Í gær sátum við fjölskyldan við morgun- hádegis- kaffiverðarborðið - jamm allt í einni máltíð kl. 14:30 :o/ Mamman búin að baka köku, feðgarnir búnir að fara út í búð og drottningin búin að ryksuga og aðeins taka mesta draslið úr eldhúsinu. Eitthvað vorum við að ræða hunda greinilega - kannski af því að Ronja átti afmæli - man það ekki. Alla vega KEB minnist á New York Tríer - man nú ekkert af hverju, en við vorum eitthvað að hlæja að þessari nýju hundategund sem við höfðum aldrei heyrt um. Ég var ekki fatta það að hann væri að meina einhverja ákveðna tegund - en systir hann hló mest og rétt náði að stynja að tegundin sem hann væri að tala um væri Yorkshire Terrier. OMG ég hló svo mikið þegar ég uppgötvaði að hann hefði verið að meina það en ekki getað komið því betur frá sér en New York Tríer!

Nú finnst fæstum þetta jafnfyndið og okkur. En þetta er mjög spaugilegt í ljósi þess að í næsta húsi við okkur búa nokkrir hundar og þeir eru allir Yorkshire Terrier og hér hefur því oft verið rætt um þessa tegund því við sjáum hana á hverjum degi :o) Maður skyldi ætla að drengurinn gæti munað heiti tegundarinnar eftir að hafa heyrt það nánast daglega síðustu árin :o)

Í hundaþættinum í gær á RÚV kom fram að það þyrfti ekki nema sjö kynslóðir hunda til að að vera kominn með nýja tegund. Í kvöldmatnum ætla ég því að leggja það til við fjölskylduna að við ræktum upp nýja hundategund og köllum hana New York Tríer :o)

Voff

Ummæli

Nafnlaus sagði…
haha, þetta lýst mér vel á...NY baby!
HMS
Lóa Björk sagði…
Yeah - við þangað :o)
KEB langar rosa mikið þangað - vill næsta fjölskyldufrí til NY, jamm spurning hvenær það verður.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...