Fara í aðalinnihald

Sól og sumar

Hvað er með þetta veður?? Ágætisveður á hverjum degi - svona á þetta að vera. Spurning um að nýta það betur í útiveru. Var að hringja í garðúðarann og fá hann til að sprauta yfir hjá mér seinnipartinn. Spurning um að vera ekki í garðinum næstu daga þrátt fyrir að konan hafi nú reynt að fullvissa mig um að það væri í góðu lagi að velta sér uppúr grasinu rétt eftir að úðun lýkur.

KEB er enn í fimleikum þrátt fyrir að hans hópur hafi lokið æfingum þennan veturinn. Honum var boðið að æfa með Senior hópnum, yngsti meðlimur þess hóps er 20 ára og er þjálfarinn hans KEB. Svo hann hlýtur að vera að standa sig ágætlega strákurinn. Pínu erfitt að vera svona langyngstur en gott tækifæri til að bæta sig. Þetta er bara nokkur skipti og svo er hann kominn í sumarfrí fram í ágúst.

Krakkarnir eru að klára skólann á morgun. Þessi vika er búin að vera óhefðbundin - ferðalög og skemmtun og útivera. Hlakka reyndar til að sjá hvernig veðrið verður á morgun. Þá eru Lágafellsleikar og nær undantekningarlaust hefur veðrið verið frekar leiðinlegt þegar þeir fara fram. En ég vona að þau fái svona veður eins og er í dag. Skólaslit eru svo seinnipartinn á morgun og þá eru þau formlega komin í sumarfrí.

Tónlistarskólinn hefur lokið starfi sínu og eru krakkarnir komnir í sumarfrí frá hljóðfærunum. KEB ætlar eitthvað að halda sér við í sumar og einnig vera duglegur að glamra á gítarinn sinn. Vona að hann standi við þau fyrirheit :o) Þau tóku bæði þátt í tónleikum í maí. KEB spilaði ásamt öðrum nemanda og kennaranum sínum undir hjá ungri upprennandi söngkonu. Gaman að sjá svona samvinnu á milli krakkanna í skólanum. Hann spilaði á söngtónleikum þar sem fullt af ungum stelpum og konum sungu einsöng með undirspili nemenda. Svo spilaði hann líka á venjulegum vortónleikum. KBB spilaði svo líka bæði samspil með öðrum fiðluleikurum. Venjulega spilar hún einleik líka en í þetta sinn höfðu þær tvær valið sama lagið. Kennaranum þótti leiðinlegt að láta þær spila sama lagið á sömu tónleikum þannig að hún lét þær spila saman. Það kom vel út hjá þeim - gaman að sjá þær spila. Litla 10 ára stelpan mín er töluvert stærri en flestir á hennar aldri að það var ekki að sjá að daman sem spilaði með henni væri árinu eldri. Það leit helst út fyrir að KBB væri svona þremur árum eldri en meðspilari hennar. Svona er þetta líka í bekknum hennar - hún stendur alveg uppúr hópnum. Hún er nánast jafnstór og kennarinn sinn :o/ Það er ekki langt þar til hún vex mér yfir höfuð.

Þau ætla bæði í sumarbúðir í ágúst. KBB í Vindáshlíð og hann í Vatnaskóg. Hann ætlar að vinna í unglingavinnunni í sumar og svo fær hann kannski eitthvað meira að gera öðru hvoru þegar vantar duglegan dreng til vinnu.

Svo er bara spurning hversu dugleg við fjölskyldan verðum að vera saman í fríi í sumar. Vona að við förum kannski í einhverja útilegu, í sumarbústað, dagsferðir, kvöldgöngur, hjólatúra, fjallaferðir og eitthvað skemmtilegt sem okkur dettur í hug. En það er víst best að byrja strax að drífa sig því sumarið er stutt og áður en maður veit af þá er komið haust.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sumarið er búið einn, tveir og bingó...þetta líður svo hratt!
HMS
Lóa Björk sagði…
Njótum þess á meðan það varir :o) - hvenær er Viðeyjarferð? Kannski þegar Erna er orðin rólfær?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...