Fara í aðalinnihald

Færslur

Perri í húsinu

Ég velti því fyrir mér hvort það sé hvolpur í húsinu og ég bara áttaði mig ekki á því. Ég nefnilega var alveg viss um að hér væru bara unglingar (hundur og manneskjur) og svo fullorðnir. Ég er orðin ansi vön einni unglingsstúlku hér. Hún dreifir úr sér út um allt hús eins og hún búi hér ein. Þetta hefur hún gert síðan hún fór að vappa sjálfstæð um húsið. Hún leggur hlutina bara frá sér þar sem hún stendur og gengur í burt. Þegar ég læt svo lítið að biðja hana fallega *kaldhæðni* að taka af stofuborðinu (allt naglalakkdótið - eða allt hárskrautið og burstana t.d.) þá kemur hún mæðuleg og tekur eitt naglalakk eða einn hárbursta en skilur rest eftir. Ef það eru fimmtíu hlutir (ekki sjaldgæft) þá þarf að biðja hana fimmtíu sinnum að koma og taka það sem hún á. Í fyrradag tók ég eftir fötunum hennar á stól inni í eldhúsi, buxur peysa og bolur. Andvarpaði og ákvað að ég nennti ekki að henda þessu inn til hennar. Nokkru seinna lá þetta þarna ennþá og hún stóð í eldhúsinu að fá sér að borð...

Hundasögur

Í gærmorgun var veðrið ógeð... algjört ógeð. Öskrandi rigning - svona extra blaut rigning. Svona var það fyrrpart dags og því ákvað húsmóðirin að voffakrílin væru inni hjá okkur. Ekkert verið að senda þau út í garð í ferskt loft. Enda er þetta veðrið sem þau hata... allt annað þola þau ágætlega. Rétt eftir hádegið fór Leo í það mál að láta vita að hann þyrfti nú að komast út að létta á sér. Hafði ekkert farið út allan morguninn, frekar en hin tvö. Skellti músinni minni (já hann er músin mín) í ólina, setti tauminn í ólina og opnaði út. Þurfti aðeins að ýta við honum svo hann drifi sig í viðbjóðinn... veðrið var viðbjóður. Hann steig út á stéttina með alla fjóra fætur en hreyfði sig ekki, stóð í innan við fimm sekúndur og sneri þá við á punktinum og ákvað að hann þyrfti bara alls ekkert að pissa lengur. Úlfur var í röð... duglegur strákur... og ég skellti ólinni á hann og opnaði fyrir hann hurðina, hann rak út trýnið en steig ekkert út - bara sneri við í gættinni og hætti við allt sam...

2013

7 bikarar Ekki gleyma þér í draumalandinu góða. Þú ert fæddur hugmyndasmiður en átt það til að gleyma stund og stað í tíma og ótíma. Væntingar þínar eru miklar til lífsins en þér er hér bent á að ákveða hvert þú ætlar þér. Fyrr en síðar ættir þú að ákveða hvað er þess virði að vinna að með raunsæju hugarfari og hvað telst til skýjaborga. Kannaðu alla möguleika áður en þú ákveður þig. Ígrundaðu val þitt alla leið og spurðu sjálfið hvaða ákvörðun færir þér hamingju. Þetta spil kom upp er ég dró fyrir árið 2013... já ég varð að ýta á "draga spil" - var að lesa visir.is :) Later

Hátíð í bæ

Gleðileg jól öll sömul og ég vona að endalaus ævintýri bíði ykkar á nýju ári.  Later

boobalicious

Á bæjarrölti á BH það til að koma með athugasemdir eins og "ó það virkar, þetta er kortið sem ég fann" þegar hann er að borga fyrir vöru. Eða "er þetta kortið sem þú stalst" þegar ég er að borga. Um daginn flæktist ég í einhverja tuskubúð í Smáranum og hann rambaði á meðan í gleraugnabúð og klappaði Oakley gleraugum sem búðarkonan hafði náð út úr læsta skápnum. Þegar ég gekk að þeim tilkynnti ég konunni að það þýddi ekkert að selja þessum manni neitt því hann væri ekki fjárráða. BH kippti sér ekkert upp við þetta en konan varð pínu hvumsa. Held hún hafi tekið mér sem lítilli control freak sem héldi fast um budduna og að BH væri kúgaðri en kjölturakki. Um daginn fór ég í smá kápuleiðangur - búin að láta mig langa í kápu lengi núna. Mínar passa ekki lengur eða eru out of date svo það er kominn tími. Við hjónin fórum í Karen Millen þrátt fyrir að ég vissi (sem kom á daginn) að ég og breskar konur erum ekki eins í vextinum. Kápurnar þeirra eru alltaf of þröngar yfir...

Ísland best í heimi

Hér er blaðrað endalaust um hve æðislegt heilbrigðiskerfið okkar er. Svo endalaust frábært og fullkomið. Við vitum betur, alla vega þeir sem fylgjast með fréttum. Úrelt tæki sem klikka í aðgerðum og önnur sem bila þannig að ekki er hægt að sinna eftirliti eða rannsóknum. Smart - virkilega smart. Sjálf hef ég kynnst því hversu mjög tíminn hefur styst sem manni er ætlaður að jafna sig eftir aðgerðir á spítala. Öllum ruslað heim eins fljótt og minnsti möguleiki er til. Ég ætla nú ekki að fjargveðrast yfir því. Hef sjálf alltaf sagt að manni líður betur heima að jafna sig ef allt er í lagi og eðlilegt eftir aðgerðir. Og sú hefur verið raunin hjá mér sem betur fer. Það var bara síðast sem ég var skorin (2010 ef ég man rétt) sem ég virkilega fann fyrir því að það var verið að skúbba mér út með hraði. Ég var heppin að hjúkkan á deildinni tók ekki í lakið vinstramegin við rúmið og hvolfdi mér úr hægra megin, svo mikið lá henni á að ég drullaði mér. Ég var svo hissa þegar læknirinn sagði að é...

Smá blástur

Mér þykir sérstaklega skemmtilegt að rölta með Fréttatímann í hvert hús í götunum sem KBB ber út í. Og var því lukkuleg í gær að þurfa að arka út í veðrið kl. 23 eftir að hafa setið inni á fundi og hlustað á vindinn berja á húsinu og smeygja sér inn um óþétta glugga. Ég get svarið það að í sumum vindhviðum fauk annar fóturinn á hinn ef maður var í miðju skrefi. Maður flæktist í sjálfum sér. Ég datt nú ekkert og ekki fauk hlunkurinn á neina ferð sem hún réði ekki við. Ég var fegin að hafa hugsað fyrir því að nota teygjur (sem við notum á bogana á bílnum, festa sleða og fleira) til að loka kerrupokanum sem flest blöðin voru í. Neita að bera hátt í 100 blöð á öxlunum, það er fullreynt að það fer illa með kroppinn. Mest hissa á að kerran hafi staðið allan tímann - hélt hún myndi kannski fjúka er blöðunum fækkaði. Þær voru nokkrar skæðar hviðurnar í Leirutanganum, Skeljatanginn var skárri, en ekki mikið. Það var fróðlegt að sjá að fólk var misjafnlega búið að gera ráð fyrir heimsókn Kára....