Á bæjarrölti á BH það til að koma með athugasemdir eins og "ó það virkar, þetta er kortið sem ég fann" þegar hann er að borga fyrir vöru. Eða "er þetta kortið sem þú stalst" þegar ég er að borga.
Um daginn flæktist ég í einhverja tuskubúð í Smáranum og hann rambaði á meðan í gleraugnabúð og klappaði Oakley gleraugum sem búðarkonan hafði náð út úr læsta skápnum. Þegar ég gekk að þeim tilkynnti ég konunni að það þýddi ekkert að selja þessum manni neitt því hann væri ekki fjárráða. BH kippti sér ekkert upp við þetta en konan varð pínu hvumsa. Held hún hafi tekið mér sem lítilli control freak sem héldi fast um budduna og að BH væri kúgaðri en kjölturakki.
Um daginn fór ég í smá kápuleiðangur - búin að láta mig langa í kápu lengi núna. Mínar passa ekki lengur eða eru out of date svo það er kominn tími. Við hjónin fórum í Karen Millen þrátt fyrir að ég vissi (sem kom á daginn) að ég og breskar konur erum ekki eins í vextinum. Kápurnar þeirra eru alltaf of þröngar yfir herðarnar á mér ef þær á annað borð passa. Hvernig má það vera ? Ég er nú ekki herðabreið. Hefði frekar skilið það ef það væri heldur þröngt yfir rassinn... ekki eins og það hafi verið naumt skammtað þar þegar ég var í framleiðslu.
Anywhoos - mátaði nr 14... geeeðveika kápu sem mig dauðlangar í. BH var nú ekki alveg að sjá þetta fyrir sér en mér fannst hún ágæt því ég gat hreyft hendurnar. En hún var svona í stærra lagi, þ.e. púffaði yfir axirnar pínu og aðeins fluffy í mittið - en ég gat hreyft mig, það er alltaf jákvætt. Sérstaklega fyrir konu sem á ekki gott samkomulag við dragtir og staka jakka og svoleiðis flíkur. Eimir alltaf eftir að vitleysingnum sem kom ávallt með íþróttaföt heim úr verslunarleiðangrum á unglingsárum. Þrátt fyrir góðan ásetning um að kaupa nú eitthvað skvísulegt... eða alla vega í áttina að einhverju öðru en joggingefni.
Well fór í að máta nr 12 og hún svona smellpassaði - já eða sko já. Hún semsagt var rosalega fín yfir mittið og rassinn (sem er awesome). En ég var í mesta basli með að hneppa tölunni yfir brjóstin (ekki í fyrsta sinn) og svo gat ég engan veginn hreyft hendurnar. Var hrædd um að rífa út úr saumunum við herðablöðin. En BH alveg sannfærður um að þetta væri eintakið sem mig vantaði og bætti við... "Þú hefðir kannski ekki átt að láta stækka brjóstin svona mikið". Takk fyrir það, nú voru báðar afgreiðslukonurnar alveg með það á hreinu að minns væri nýkominn úr brjóstastækkun, sennilega gert ráð fyrir að við værum nýbyrjuð saman og nú væri kærastinn svona lukkulegur með nýju brjóstin og það allt að hann væri bara á kafi í veskinu sínu að kaupa dýrar gjafir handa gærunni.
Það er stundum pínu vandræðalegt þegar brandararnir fljúga... það ná þeim ekki alltaf allir!
Má bæta við að við vorum áðan í Krónunni að kaupa það sem við viljum hafa í ísskápnum yfir jólin... karfan orðin full og við í mjólkukælinum og ég bið hann að rýma til fyrir mjólkina og heyri þá strax "til mil skil il ..."
Later

Ummæli