Mér þykir sérstaklega skemmtilegt að rölta með Fréttatímann í hvert hús í götunum sem KBB ber út í. Og var því lukkuleg í gær að þurfa að arka út í veðrið kl. 23 eftir að hafa setið inni á fundi og hlustað á vindinn berja á húsinu og smeygja sér inn um óþétta glugga. Ég get svarið það að í sumum vindhviðum fauk annar fóturinn á hinn ef maður var í miðju skrefi. Maður flæktist í sjálfum sér. Ég datt nú ekkert og ekki fauk hlunkurinn á neina ferð sem hún réði ekki við. Ég var fegin að hafa hugsað fyrir því að nota teygjur (sem við notum á bogana á bílnum, festa sleða og fleira) til að loka kerrupokanum sem flest blöðin voru í. Neita að bera hátt í 100 blöð á öxlunum, það er fullreynt að það fer illa með kroppinn. Mest hissa á að kerran hafi staðið allan tímann - hélt hún myndi kannski fjúka er blöðunum fækkaði.
Þær voru nokkrar skæðar hviðurnar í Leirutanganum, Skeljatanginn var skárri, en ekki mikið. Það var fróðlegt að sjá að fólk var misjafnlega búið að gera ráð fyrir heimsókn Kára. Sumir búnir að skorða ruslafötur vel en aðrir gerðu ekkert. Og voru sumar fötur komnar af stað, eða alla vega opnar. Er ég var svona að um það bil að klára að ganga 01 kom hundur á móti mér. Mér dauðbrá og hugsaði, vá harkan að vera úti með hundinn á þessum tíma í þessu veðri. Kom í ljós sekúndu seinna að þessi hundur var aðeins of kátur að sjá mig. BH hafði dressað sig í útigallan þegar hann kom heim og ég kalla hann góðan að hafa fundið mig á þessu rölti. Nógu erfitt að finna útburðardýrið þegar maður veit nokkurn veginn í hvaða húsum á að leita. Hann náði að koma tímanlega til að setja blöð inn um fjórar lúgur á meðan ég kláraði miðjuna þarna. Svo röltum/fukum við heim saman og fengum okkur miðnæturkaffi.
Magnaðir þessir hundar. Úlfur var svo á því að þetta sé veðrið til að vera úti að leika. Sperrtur og mátulega hyper tilbúinn í allt. Verst að við fórum bara beint heim. Svo þegar við erum að hleypa þeim út að pissa núna þá sér maður þau taka sér stöðu, sperra sig og setja skottið svona aðeins upp, með andlitið beint upp í vindinn. Á meðan skelfur maður, og húsið líka, í opinni hurðinni og biður kvikindið vinsamlegast um að pissa í hvelli og hypja sig svo inn.
Í morgun vaknaði ég svo og vakti KBB. Ég gat ekki sent hana eina út með Morgunblaðið. Hún var voða fegin og fékk að velja hvort við gengjum allt saman eða tækjum sitt hvort eins og alltaf. Hún vildi vera snögg og við fórum í sitt hvora götuna. Afskaplega hressandi að arka þetta í svona blæstri, ekki hægt að segja annað en að ég hafi verið vel vöknuð er ég komst heim aftur. Maður er búin að bryðja sand, slást við laufblöð og er ansi þurr í augunum.
Þegar ég svo aulaðist á fésbókina, eftir að hafa smurt ofan í KEB (sem gleymdi fínerínu) og fengið með morgunmat, fannst mér spaugilegt að sjá mæður með jafngömul börn og KBB og eldri tjá sig um það að þeirra börn færu nú ekki út í þetta veður. Nei takk, búið að hringja í skólann og tilkynna að þau yrðu heima í dag. Verð að viðurkenna að ég fékk ekkert samviskubit yfir að hafa sent krakkann út með blöðin, hún er bæði stærri og kröftugri en ég svo hún fór létt með þetta. Hún gekk líka heima úr skólanum. Ég var með smá móral föst í vinnunni. Hringdi heim á þeim tíma sem hún ætti að vera að ganga inn. Eina sem hún hafði að segja var... "þetta er nú ekki svo slæmt". Kjarnakona hún dóttir mín - Íslendingur :)
Fyndnasti status dagsins var klárlega frá þeim sem sagðist ekki ætla að viðra hundana sína aftur í svona roki... fannst ekkert gaman að elta kúk með fjóra hunda fasta við sig :) Svo verð ég að viðurkenna að fyrirsagnir blaðanna á vefnum eru að kæta mig mikið líka. T.d. fyrirsögnin hérna hjá DV. Og svo þessi hjá Vísi.
Skyldi kennarinn vera bótaskyldur ? Og er það venjan að fólk fjúki á slysó og týnist þar í svona roki ? Í alvöru - þetta er kennt í 10 ára bekk, þ.e. að varast svona setningar því þær eru svo klaufalegar :)
Later

Ummæli