Fara í aðalinnihald

Ísland best í heimi

Hér er blaðrað endalaust um hve æðislegt heilbrigðiskerfið okkar er. Svo endalaust frábært og fullkomið. Við vitum betur, alla vega þeir sem fylgjast með fréttum. Úrelt tæki sem klikka í aðgerðum og önnur sem bila þannig að ekki er hægt að sinna eftirliti eða rannsóknum. Smart - virkilega smart. Sjálf hef ég kynnst því hversu mjög tíminn hefur styst sem manni er ætlaður að jafna sig eftir aðgerðir á spítala. Öllum ruslað heim eins fljótt og minnsti möguleiki er til. Ég ætla nú ekki að fjargveðrast yfir því. Hef sjálf alltaf sagt að manni líður betur heima að jafna sig ef allt er í lagi og eðlilegt eftir aðgerðir. Og sú hefur verið raunin hjá mér sem betur fer.

Það var bara síðast sem ég var skorin (2010 ef ég man rétt) sem ég virkilega fann fyrir því að það var verið að skúbba mér út með hraði. Ég var heppin að hjúkkan á deildinni tók ekki í lakið vinstramegin við rúmið og hvolfdi mér úr hægra megin, svo mikið lá henni á að ég drullaði mér. Ég var svo hissa þegar læknirinn sagði að ég mætti bara fara samdægurs, mjög ánægð, en hissa. Um leið og hann sleppti orðunum að ég mætta bara skottast þá tilkynnti hjúkkan að ég yrði að vera FARIN KLUKKAN 17. Wow róleg kona, fæ ég að hringja í vin og láta sækja mig ? Heppna ég að BH sótti mig fyrir klukkan 17, enginn veit hvernig þetta hefði getað endar annars!

Góð vinkona endaði á spítala í gærdag með svæsna magaverki. Talið að nýrnasteinn væri að kvelja hana. Veit nú ekki smáatriði en hún endaði með morfín í æð fram á nótt, svo kvalin var hún og þeir fundu ekkert. Klukkan 02 í nótt þótti þeim nóg komið og hringdu í eiginmanninn og báðu um að hún yrði sótt. Hún mætti svo koma aftur klukkan 09 í fyrrmálið (í morgun semsagt). Ég er svo hneyksluð að ég froðufelldi þegar ég heyrði þetta. Hvur andskotinn er að ??? Hringja um miðjar nætur til að láta sækja fársjúkt fólk, illa kvalið með rótsterk verkjalyf í æð sem rétt duga!

Það er skemmst frá því að segja að eiginmaðurinn fór á lappir, dröslaðist út í bíl og keyrði úr Mos á spítalann til að sækja eiginkonu sína á spítalann. Þau komust ekki út ganginn á deildinni áður en það steinleið yfir hana og henni var dröslað aftur upp í rúm þar sem hún fékk náðarsamlegast að liggja fram á morgun.

Sem betur fer er hún komin heim, á ekki von á að vera rekin úr rúminu sínu, má liggja þar og hvíla sig eins og henni hentar eftir átökin. Talið að nýrnasteinn hafi farið niður með látum.

Það er eins gott að reyna að vera bara heilbrigður eins og hægt er. Því ekki er hægt að treysta á fulla þjónustu frá heilbrigðiskerfinu. Illa mannaðar stofnanir með yfirkeyrðu starfsfólki, sem þó gerir sitt besta. Úrsérgengin tæki og ekki hægt að nýta allt pláss vegna peningaskorts. Það er skömm að þessu - spurning hvort nokkur myndi vorkenna þingmönnum sem vonandi fá að reyna á eigin skinni hvernig taka þarf á móti sjúklingum í þessu umhverfi sem starfsfólki og sjúklingum er boðið uppá !

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...