Litla drottningin mín lagðist í ból föður síns á miðnætti (hann að vinna) og lá við hlið mér í klukkutíma tæpan á spjalli um allt milli himins og jarðar.
Meðal annars ræddum við Afríku og erfiðleikana sem ávallt virðast herja á fólkið í þeirri heimsálfu. Hún er nýbúin að gera verkefni í samfélagsfræði þar sem hún kynnti sér alls konar staðreyndir um bágborið ástand víða í Afríku. Hungur, skort á hreinu vatni, sjúkdómar o.s.frv. Henni þykir erfitt að hugsa til þess að allt þetta fólk eigi svo bágt og lítið sem virðist ganga að koma þeim til hjálpar.
Við fórum þrjú í gærkvöldi á American Style og fengum okkur að borða, þ.e. við hjónin ásamt heimasætunni. Frumburðurinn var á æfingu.
Svo hún var að segja mér frá því að þegar við vorum að fara á staðinn þá var hún að hugsa sem svo... hmm ég er ekkert mjög svöng, og við erum að fara að fá okkur hamborgara. Ég sem sagt á við það vandamál að stríða núna að vera að hafa áhyggjur af því að éta of mikið... ofát mitt vandamál á meðan heill heimur af fólki og börnum fær ekki nóg að borða yfir daginn og er alltaf svangt. Þetta er ósanngjarnt.
Og svo kom gullmolinn... mjög einlægt og ekki sagt í neinni hæðni :
Mig langar bara stundum að henda í þau fullt af hamborgurum...
Ok mjög alvarlegar umræður inn í nóttina, en þarna sprakk ég úr hlátri - þetta var of fyndið fyrir mig.
Eftir að hafa hlegið að þessari athugasemd þá ræddum við þetta aðeins meira - en áttum fá úrræði svo sem.
Later

Ummæli