Fara í aðalinnihald

Be careful...

... what you whish for, it might come true.

Ég hef oft rekið mig á að það sem maður óskar sér, er ekki endilega það sem mann vantar eða það sem maður raunverulega vill þegar á reynir. Í dag reyni ég að passa hvernig ég hugsa mér lífið betra, öðruvísi - eða hvað það er sem mig langar, eða langar ekki.

Því stundum þá rætist óskin manns en það er eitthvað ekki eins og það á að vera samt. Sá þetta myndband með frétt á pressan.is - vekur mann aðeins til umhugsunar. Það er ekki alltaf allt sem sýnist.


Oft þurfum við að læra að grasið er ekki endilega grænna hinum megin við lækinn. Það þarf að læra að vera sáttur við það sem maður á og hefur. En það þýðir ekki að við megum ekki stefna á að gera lífið betra eða öðruvísi. Við þurfum að vinna að því gáfulega og athuga hverjar forsendurnar eru fyrir því sem við erum að óska okkur.

Smá klisja - sem er samt svo sönn - Lífið er ferðalag, ekki áfangastaður, og við eigum að njóta ferðarinnar. Gera okkur glaðan dag í þeim verkefnum sem við erum að vinna að hverju sinni. Það er áskorun.

Til hvers þurfum við meiri pening ? Af hverju þarf að kaupa nýjar gardínur ? Verðum við lukkulegri í stærra og fínna húsi ? Þarf endilega að fljúga yfir hafið til að eiga gott frí ?

Ef við eigum þak yfir höfuðið, mat í svanga maga og föt á kropinn þá erum við rík. Ef ég mætti fá eina ósk uppfyllta í dag þá væri hún þessi... ég vil vera sátt.

Sátt við fólkið mitt, sátt við umhverfið, sátt í sálinni, sátt við lífið.

En hey ég vil samt ennþá þennan Land Cruiser á 35"... það er enginn fullkominn ;)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...