Ég finn mig knúna til að vera fyrri til. Ég vil bara ekki vera óheiðarleg. Myndin hérna í horninu, af mér, er fótósjoppuð í drasl (held ég, alla vega fótósjoppuð). En mér til varnar þá gerði ég það nú ekki sjálf. Eiginmaður minn á það til að taka nokkrar myndir og fótósjoppa þær til áður en þær eru notaðar til birtingar eða til að sýna þær. Ég bað ekkert um það sko. Og til að toppa þetta allt saman er líka búið að gera hana svart hvíta. Jú jú ég grenjaði myndina frá honum þegar ég sá hvað hún er fín. Ég viðurkenni það.
Ég vildi bara vera fyrri til, áður en næsti sunnudagspistill nornarinnar á mbl í "fallegur að utan, ljótur að innan landi" kemur út. Vil alls ekki lenda í því að hún segi frá kvenbloggara á fimmtugsaldri (foookk hvað ég hata að skrifa á fimmtugsaldri) sem er greinilega með fótósjoppaða mynd í profile hjá sér. Skyldi hún nokkuð vera með fótósjoppaðar myndir af sér á mbl við greinarnar sínar ?? Neeeiii það getur ekki verið, hvernig læt ég. Hlýt að vera með óráði af öfund út í einstaka fegurð hennar og fullkomleika :/
Hérna í alvöru - Hvaðan kemur þessi kona ? Hún lifir á því að segja okkur hvað við erum öll ómöguleg og hvaða ráðum við þurfum að beita til að líta betur út og vera betri manneskjur. Og svo skilur hún bara ekki hvað fær fólk til að nota ráðin hennar fínu. Uppáhaldið mitt er samt þegar hún gerði lítið úr útigangsfólki, en kom verst út úr því sjálf. Þegar hún sagði, man ekki orðrétt, að hana hefði ekki grunað að það væri hægt að gera hana svona ljóta. REALLY, hefurðu aldrei séð bíómyndir eða farið í leikhús. Eða er bara hægt að gera alla hina ljóta... ekki hana ?
Æ ok - hætti núna, hún gekk bara svo snyrtilega fram af mér um helgina. Tek ofan fyrir dömunni sem ákvað að taka þessu ekki liggjandi og vaða bara í hana tilbaka af fullum þunga. Vel gert unga daman, vel gert.
Svo á þetta bara við núna... svo ég læt það flakka
Ég kann betur við þessa útgáfu af laginu og pósta henni þess vegna - finnst hin upprunalega fín líka samt :)
Og til að hafa vaðið fyrir neðan mig þá er ég ekki alveg sammála þessum texta öllum. Mér finnst kominn tími til að hver einstaklingur, hvernig sem hann er í laginu, fái að njóta sín og vera ánægður í eigin skinni.
Sé ekki að það sé betra að upphefja stóra rassa og mjúkar línur og drulla yfir þá sem eru grannvaxnir í leiðinni. Það eiga allir rétt á að hafa jákvæða líkamsvitund.
Later

Ummæli