Netið er búið að vera í sultu síðustu daga. Eiginmaðurinn ekki á landinu og frúin orðin dáldið pirruð á þessu. En reyni að hemja mig... ekki svo merkilegt sem maður er að gramsa á netinu hvort sem er. Lifi af þó ég sjái ekki eitt myndband af því ég nennti ekki að bíða, og mbl kemur upp á endanum! Þurfti þó að gera nokkrar öndunaræfingar þegar ég horfði á restina af Borgen af netinu í fyrradag. Sem betur fer var þátturinn meira en hálfnaður þegar ég hætti að horfa á sunnudagskvöldið. Ég var að verða ansi tæp á geði við að horfa á hikstandi þáttinn mjakast áfram.
Nördinn minn kom heim í gærkvöldi, það þurfti ekkert að minna hann á netið. Hann fann það strax að eitthvað var ekki í lagi. Svo hann endurræsti Ráterinn (íslensk stafsetning er fín). Í stuttu máli virkaði það ekki baun. Svo hann skellti skuldinni á að eitthvað væri að hjá þeim sem við kaupum af, ætlaði að athuga það í fyrramálið, sem sagt núna í morgun.
Fékk símtal stuttu eftir að hann var mættur í vinnu. Jú hann var búinn að komast að þessu með hundinn takk fyrir. Það lítur helst út fyrir að hér búi um 15 manns sem allir liggi á netinu og streymi bíómyndum í sífellu á allar vélar í húsinu (þær eru þónokkrar) and then some.
Ég varð brjáluð, vitandi að börnin mín hafa legið á netinu og glápt á bíómyndir og drasl og það hefur bara aukist undanfarið - greinilega. Það er búið að ræða þetta við þau - oft - en það gengur greinilega ekki nógu vel að koma þessum skilaboðum í hausinn á þeim.
Þau eru heppin núna, þau eru í vernduðu umhverfi í skólanum... þar er örugglega eitthvað í gildi sem heitir barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna. Gott ef það er ekki klausa þar sem segir: "gerðu og hegðaðu þér eins og þú vilt, alveg óháð því sem öðrum finnst eða hverjum það bitnar á... bara ef þú ert kátur og glaður."
Þau eru líka pínu óheppin, þau þurfa að koma heim á endanum. Hér fá þau að borða. Og hér gildir enginn svona sáttmáli, ekki nokkur. Og mamman er pirruð (brjáluð). Svo það er hætt við að einn ipad hverfi og fartölvur líka ef þau hlusta ekki í þetta sinn. Það verður fylgst með daglega núna... ekki þeim persónulega, neibb - netnotkun, línurit og læti! Þau eiga það á hættu að þurfa að skila handskrifuðum verkefnum í skólann ef þau fara ekki að hegða sér !
Later

Ummæli